„Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Aron Guðmundsson skrifar 4. ágúst 2026 16:03 Aron Einar lék aðeins einn leik með Þór Akureyri í heimkomu sinni í þetta skipti. Hann ætlar sér að klára ferilinn með Þór Mynd: Þór Akureyri Aron Einar Gunnarsson ritar kveðju til Þórsara eftir skyndilegt brotthvarf hans frá uppeldisfélaginu eftir afar stutt stopp. Hann segir ákvörðunina, að fara frá félaginu og halda aftur til Katar, þá erfiðustu sem hann hefur tekið á ferlinum. Aron Einar spilaði aðeins einn leik með Þór Akureyri í heimkomunni í Bestu deildinni í þetta skiptið. Í þeim leik vann Þór sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings Reykjavíkur á heimavelli. Það reyndist eini leikur Arons Einars með félaginu á þessu tímabili því stuttu eftir að hann hélt aftur heim á Akureyri barst tilboð frá Katar sem hann gat ekki hafnað. „Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri,“ segir Aron Einar í kveðju sem birtist á vef Akureyri.net í dag. Hann ætlar sér að klára ferilinn með sínu fólki á Akureyri. „Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki.“
Aron Einar spilaði aðeins einn leik með Þór Akureyri í heimkomunni í Bestu deildinni í þetta skiptið. Í þeim leik vann Þór sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings Reykjavíkur á heimavelli. Það reyndist eini leikur Arons Einars með félaginu á þessu tímabili því stuttu eftir að hann hélt aftur heim á Akureyri barst tilboð frá Katar sem hann gat ekki hafnað. „Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri,“ segir Aron Einar í kveðju sem birtist á vef Akureyri.net í dag. Hann ætlar sér að klára ferilinn með sínu fólki á Akureyri. „Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki.“ Kveðja Arons Einars í heild sinni: Sælir mínir kæru Þórsarar! Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri. Ákvörðunin var mjög erfið og það sýnir mér hve ég er tengdur þessum klúbbi sterkum böndum; þetta er mitt lið, það er mitt fólk sem sér um liðið og mitt fólk sem styður það. Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki. Ég vona að þið, kæru Þórsarar, berið virðingu fyrir ákvörðuninni sem ég tók fyrir fjölskylduna og sjálfan mig. Höldum áfram að berjast saman í þessu og fögnum að lokum! Kveðja, Aron Einar
Kveðja Arons Einars í heild sinni: Sælir mínir kæru Þórsarar! Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri. Ákvörðunin var mjög erfið og það sýnir mér hve ég er tengdur þessum klúbbi sterkum böndum; þetta er mitt lið, það er mitt fólk sem sér um liðið og mitt fólk sem styður það. Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki. Ég vona að þið, kæru Þórsarar, berið virðingu fyrir ákvörðuninni sem ég tók fyrir fjölskylduna og sjálfan mig. Höldum áfram að berjast saman í þessu og fögnum að lokum! Kveðja, Aron Einar
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Íslenski boltinn Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Handbolti UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Sport Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn UFC-bardagakappi lést í svefni Sport Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Fleiri fréttir Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sjá meira