Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Samúel Karl Ólason skrifar 5. ágúst 2026 15:02 Vladimir Tkachuk að sýna Vladimír Pútín, forseta Rússlands, dróna sína árið 2024. AP/Valeriy Sharifulin, Sputnik Stjórnandi verksmiðju sem framleiðir sjálfsprengidróna fyrir rússneska herinn er sagður alvarlega særður eftir að bíll hans sprakk í loft upp í Úralfjöllunum í gær. Vladimir Tkachuk var fluttur á sjúkrahús og ku vera í alvarlegu ástandi á gjörgæslu en lífvörður hans er látinn.
Svo virðist sem þetta sé annað banatilræðið gegn rússneskum hergagnaframleiðanda á einni viku. Samkvæmt rússneskum fjölmiðlum var Tkachuk, sem er stofnandi fyrirtækisins Uraldronzavod, staddur í þorpinu Bolshoy Isto, sem er skammt frá Yekatierinburg, borginni þar sem fyrirtækið framleiðir „Upyr“-drónana svokölluðu, þegar bíll hans sprakk. Þetta var, samkvæmt Moscow Times, í gær en fregnir bárust ekki af sprengingunni fyrr en í morgun þegar myndbönd frá vettvangi fóru í dreifingu. Aðrir miðlar ytra segja að svo virðist sem sprengju hafi verið komið fyrir undir bíl Tkachuks. Yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert sagt um málið en Rússar hafa áður sakað Úkraínumenn um að bera ábyrgð á banatilræðum og launmorðum á Rússum sem tengjast herstjórn og hergagnaframleiðslu. Auk þess að framleiða dróna fyrir herinn stýrir Tkachuk vinsælli síðu á Telegram. Drónar eins og „Upyr“ spila stóra rullu í stríðinu í Úkraínu. Þar er um að ræða tiltölulega smáa dróna sem stýrt er með sýndarveruleikagleraugum. Upyr þykir ódýr í framleiðslu en í senn áreiðanlegur á víglínunni. In Yekaterinburg, the car of Vladimir Tkachuk, CEO of Uraldronzavod, which produces “Upyr” drones for the Russian army, was blown up.Tkachuk is in intensive care in critical condition, and his driver was killed. pic.twitter.com/Vlnn7e2YIz— Visegrád 24 (@visegrad24) August 5, 2026 Á laugardaginn varð stór sprenging á fínu veitingahúsi í Moskvu. Fimm munu hafa látist í sprengingunni og nítján særðu en borgarstjóri Moskvu hefur sagt að um hryðjuverk sé að ræða. Ekki liggur fyrir hver var skotmark sprengingarinnar, ef einhver, en samkvæmt NBC News hafa rússneskir miðlar gefið til kynna að rússneskur herforingi hafi verið að halda afmæli sitt á veitingahúsinu á laugardaginn. Sá heitir Alexander Chaiko en árið 2022 leiddi hann hermenn sem reyndu að sækja að Kænugarði. Hann var nýverið gerður að yfirmanni flugers Rússlands og eldflaugavarna.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira