Lífið

Mikkel Han­sen og Guð­laugur Victor í stuði hjá 66°Norður

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kempurnar Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor létu sig ekki vanta.
Kempurnar Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor létu sig ekki vanta. Anna María Björnsdóttir

Íslenska útivistarmerkið 66°Norður hélt á þriðjudaginn götupartí í tilefni opnunar nýrrar verslunar á Store Regnegade í miðborg Kaupmannahafnar. Meðal gesta voru landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson og danska stórskyttan Mikkel Hansen.

Það var margt um manninn í götupartíinu og góð stemmning meðal gesta. Gatan fyrir utan verslunina var pökkuð af fólki og greinilega mikill áhugi meðal Kaupmannahafnarbúa á nýju versluninni.

Fjöldi fólks mætti í partýið.Anna María Björnsdóttir

Verslunin er sú þriðja sem 66°Norður opnar í Kaupmannahöfn, er 160 fermetrar á tveimur hæðum og sækir innblástur til Íslands. Í versluninni er að finna vegg úr hraunhellum, íslenskt berg sem og mátunarklefarnir skírskota í jökla og jöklahella. Verslunarrýmið er málað með málningu frá íslenska fyrirtækinu Dýpi sem vinnur málningu úr kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum.

Danski handboltamaðurinn Mikkel Hansen var á meðal þeirra fjölmörgu sem létu sjá sig og var hann í góðum gír. Plötusnúðar og tónlistarmenn héldu uppi stuðinu með góðri tónlist, þar á meðal voru Jón Atli Helgason, KUNDO, Bette, Lulu Rouge, DJ Kaddi Sawaneh og Sexy Lazer.

Hér að neðan má sjá myndir úr götupartýinu:

Rasmus Storm, eigandi verslunarinnar Storm, ræðir við Mikkel Hansen.Anna María Björnsdóttir

Guðný, Aldís Eik og Shannon í góðum gír.Anna María Björnsdóttir

Kellyn Wilson með einn kaldan á kantinum.Anna María Björnsdóttir

Helgi Óskarsson, eigandi 66°Norður, umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon og Guðlaugur Victor Pálsson.Anna María Björnsdóttir

Tónlistarkonan Bette í góðum hópi.Anna María Björnsdóttir

Tvær hressar píur.Anna María Björnsdóttir

Mikkel Hansen með góðum félögum.Anna María Björnsdóttir


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.