Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Aron Guðmundsson skrifar 7. ágúst 2026 12:32 Lise Klaveness, formaður norska knattspyrnusambandsins, hefur greint frá því að sambandið kalli eftir afsögn forseta FIFA, Gianni Infantino. Fyrrverandi forseti FIFA, Sepp Blatter, hefur mikið álit á Lise en það er ekki gagnkvæmt. Vísir/Samsett Norska knattspyrnusambandið, með formann sinn Lise Klaveness í fararbroddi, krefst þess að Gianni Infantino segi af sér sem forseti FIFA. Um leið minnir Lise, Sepp Blatter forvera Infantino í embætti á hans fortíð en Blatter stakk upp á því að Lise yrði næsti forseti sambandsins.
Ákall norska knattspyrnusambandsins um að Infantino segi af sér koma eftir að hann þurfti að draga í land áætlun sína um að fá inn utanaðkomandi fjárfestingar í FIFA. Á sama tíma hafa knattspyrnusambönd Argentínu og Mexíkó lýst yfir stuðningi sínum við forsetann. Með því að kalla opinberlega eftir afsögn Infantino stígur norska knattspyrnusambandið skrefinu lengra en knattspyrnusambönd Wales, Króatíu og Englands svo dæmi séu nefnd en þau knattspyrnusambönd hafa einungis degið til baka stuðning sinn við Infantino. „Infantino nýtur ekki stofnanalegs trausts sem til þarf til þess að stýra FIFA örugglega á þeim tímum sem við nú lifum,“ lætur Lise Klaveness. „Infantino á enga endurkomuleið. Fótboltinn á alþjóðavísu á við mikinn vanda að etja og nú þurfum við að finna samnefnara til þess að koma saman. Við biðjum forseta FIFA um að segja af sér núna.“ Blatter er aðdáandi Lise er lögfræðingur að mennt og sjálf með landsliðsferil að baki sem leikmaður. Hún hefur þótt mjög skelegg í starfi og heillaði meðal annars fyrrverandi forseta FIFA, Sepp Blatter, sem þurfti sjálfur að segja af sér árið 2015 eftir röð hneykslismála. Sepp Blatter á blaðamannafundi árið 2015 sem forseti FIFA þegar að fölskum peningaseðlum var látið rigna yfir hann. Vísir/AFP Blatter stakk upp á því í færslu á samfélagsmiðlinum X á dögunum að Lise yrði næsti forseti FIFA. Hún gefur lítið fyrir tillögu Blatter, hefur slæma reynslu af honum frá fyrri tíð. „Ég er ekki á X en sá þetta. Sepp Blatter var forseti FIFA þegar að ég var leikmaður. Ég man að hann vildi að leikmenn í kvennaboltanum spiluðu í styttri stuttbuxum. Ég lét í mér heyra þá en hef ekkert um þetta að segja.“
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira