Körfubolti

Ísreal í undan­úr­slit á kostnað Ís­lands

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sara Logadóttir keyrir á körfuna. 
Sara Logadóttir keyrir á körfuna.  FIBA

Landslið Íslands skipað leikmönnum átján ára og yngri tapaði 89-69 gegn Ísrael í átta liða úrslitum B-deildar Evrópumótsins í körfubolta.

Slæm skotnýting varð íslenska liðinu að falli í þessum leik. Stelpurnar okkar hittu aðeins úr 20 af 40 vítaskotum og aðeins 3 af 28 þriggja stiga skotum.

Með svo slaka hittni var sigurinn aldrei að fara að skila sér og Ísrael vann öruggan tuttugu stiga sigur.

Rebekka Rut var stigahæst en hitti ekki úr fimm þriggja stiga skotum og setti aðeins fimm af tíu vítum niður.FIBA

Rebekka Rut Steingrímsdóttir, leikmaður KR, var stigahæst hjá Íslandi með 26 stig. Hulda María Agnarsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, var næst á eftir henni með 13 stig.

Ísland mun spila tvo leiki til viðbótar, um sæti 5-8 á mótinu, en á ekki lengur möguleika á að vinna sér inn sæti í A-deild á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×