Teslan á sjálfstýringu þegar hann klessti á Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 21:31 Shanahan braut rifbein og handarbein í árekstrinum. Þá þurfti að sauma 40 spor í andlit hans. EPA/TANNEN MAURY Kyle Shanahan, þjálfari San Francisco 49ers í NFL-deildinni, segir Teslu sem hann keyrði á hafa verið á sjálfstýringu þegar hann beygði yfir á öfugan vegarhelming í sumar. Árekstur varð vegna þess og Shanahan braut nokkur bein.
Shanahan sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær, í fyrsta sinn eftir slysið sem varð þann 14 júní. Shanahan segir bílinn hafa verið á sjálfstýringu en að hann virðist hafa óvart tekið stillinguna af er hann teygði sig eftir farsíma sem datt í gólfið. Hann hafi notað sjálfstýringuna reglulega í um áratug og aldrei lent í vandræðum fyrr. „Þetta er eitthvað sem ég er vanur að nota, ég veit ekki hvað gerðist þegar ég sneri mér við, hvort hún bilaði eða hvort ég hafi slökkt á henni? Ég veit það ekki fyrir víst,“ sagði Shanahan við blaðamenn. „Burt séð frá þvó er það alltaf sjálfum þér að kenna, hvort sem bíllinn er stilltur á sjálfstýringu eða ekki. Þú mátt ekki taka augun af veginum. Keyrsla er samspil. Þú kemur því ekki bara yfir á einhverja tölvu. Það er fín lexía.“ Tesla Shanahans sveigði yfir á öfugan vegarhelming, á móti umferð, og hann klessti á Mercedes Benz jeppa. Bílstjóri hins bílsins slapp ómeiddur frá slysinu en Shanahan braut rifbein, bein í vinstri hendi og fékk skurð á hægri augabrún sem þurfti 40 spor til að loka. Hvorugur var undir áhrifum og sagði lögreglan að ekkert hafi mælst í blóði bílstjóranna. Shanahan segist hafa verið á heimleið frá kírópraktor þegar slysið varð. Shanahan er enn að jafna sig eftir slysið en segist stefna á að vera á hliðarlínunni þegar hans menn mæta Tennessee Titans í fyrsta æfingaleik sumarsins á fimmtudaginn kemur.
NFL Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjá meira