Sport

„Ömur­leg niður­staða“

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA. Vísir

„Maður er dofinn og á erfitt með að hugsa skýrt í augnablikinu, mjög sár og svekktur. Þetta er bara ömurlegt. Þetta er ömurleg niðurstaða að við höfum farið niður,“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA eftir að fall liðsins úr Bestu deildinni var staðreynd þrátt fyrir 5–1 sigur á ÍBV.

„Leikmenn stóðu sig vel í dag. Við ákváðum að einbeita okkur alfarið að okkar leik og ekki vera að spá í öðru. Við vinnum stóran sigur á heimavelli sem er flott, skorum fullt af mörkum og nokkrir ungir sem fá að spila. Það er jákvætt en maður er bara rosalega svekktur að við séum að fara niður um deild.“

Hallgrímur hefur upplifað bæði hæðir og lægðir með KA.

„Ég er búinn að upplifa allan skalann í KA. Hlutir hafa gengið rosa vel og við höfum verið ánægðir með okkur að fara í úrslitaleiki og vinna bikar og standa okkur vel í Evrópu en því miður þurftum við að upplifa þetta líka.“

Hann var spurður hvað hefði farið úrskeiðis á tímabilinu.

„Þetta er ekki búið að vera gott tímabil. Við vildum ekki tala um það á meðan tímabilið var í gangi en það er hægt að segja það núna að við lendum í átta langtímameiðslum og ég held því miður að það hafi orðið okkur að falli. Við brugðumst við í glugganum og tökum inn tvo leikmenn sem stóðu sig frábærlega. Oft hefði þessi stigafjöldi dugað en því miður dugði það ekki.“

„KA er búið að gera allt sem í þess valdi stendur. Við fáum Eið Smára inn í teymið sem var mjög góð ákvörðun. Æðislegt að vinna með honum og mér fannst það gefa okkur mikið enda höfum við unnið fjóra af síðustu sex leikjum en því miður fór tímabilið fyrr í sumar og mér þykir það bara ótrúlega leitt fyrir hönd allra sem þykir vænt um KA.“

Óvíst er hvort Hallgrímur heldur áfram hjá félaginu.

„Ég veit það ekki. Ég á ár eftir af samningi og mig langar alls ekki að enda mína veru hjá KA svona en við eigum eftir að setjast niður og ræða þetta þegar hausinn verður aðeins skýrari.“

Um mögulegt áframhaldandi samstarf við Eið Smára Guðjohnsen sagði Hallgrímur:

„Mér myndi finnast það gaman. Það er æðislegt að vinna með honum og hann hefur gert mikið fyrir okkur. Þvílíkt sem hann hefur haft góð áhrif á KA. Ég hef ekki rætt við hann. Við ákváðum fyrir nokkrum vikum að klára þetta mót og síðan myndum við setjast niður og tala saman.“

Hallgrímur er sannfærður um að KA muni ná sér á strik á ný.

„Enn og aftur þykir mér þetta bara ótrúlega leitt en KA mun bara rísa aftur. Við vorum búnir að vera stoltir af því hérna innanbúðar að við værum eina liðið utan af landi sem væri í deildinni níu til tíu ár í röð þannig að það er ekkert óeðlilegt að einhvern tímann gangi hlutirnir ekki upp. KA hefur alltaf þegar eitthvað hefur bjátað á sýnt styrk sinn og ég hef engar áhyggjur af öðru en að við gerum það aftur. KA mun aftur fara upp í Bestu deildina mjög fljótlega.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×