Körfubolti

Ís­lenska liðið enn ósigrað

Andri Broddason skrifar
Íslenska landsliðið vann nauman sigur á Kýpur í dag og sigur á toppi B-riðils.
Íslenska landsliðið vann nauman sigur á Kýpur í dag og sigur á toppi B-riðils. FIBA

Íslenska U16 karlalandsliðið í körfubolta hélt sigurgöngunni sinni áfram með naumum sigri á Kýpur. Þetta var fjórði sigur liðsins í B-deild Evrópumóts U16 í körfubolta og er liðið enn taplaust.

Ísland mætti Kýpur í dag í fjórða leik liðsins á EM U16 í körfubolta. Leikurinn var mjög jafn en Kýpur byrjaði leikinn mjög sterkt og komst í ellefu stiga forskot fljótlega í fyrsta leikhluta. Íslenska liðið náði þó að minnka muninn og var aðeins eitt stig milli liðanna í hálfleik.

Leikurinn hélt áfram að vera gríðarlega jafn en hann endaði með þriggja stiga sigri Íslands 61-58. Íslenska liðið er því enn taplaust á EM og hefur unnið alla sína leiki. Íslenska liðið er því á toppi B-riðils en Króatía er einnig taplaust í riðlinum. Króatía hefur spilað einum leik færra og mætir Króatíu seinna í dag.

Davíð Antonsson var stigahæstur í liði Íslands með fimmtán stig. Atli Haraldsson var næststigahæstur með ellefu stig en hann tók einnig ellefu fráköst í leiknum.

Næsti leikur liðsins er gegn Króatíu á morgun en efstu tvö lið riðilsins fara áfram í 8-liða úrslit. Ísland er því búið að koma sér í góða stöðu til þess að komast þangað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×