Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 21:14 Mosfellingar náðu í stig í Árbænum í kvöld og halda því toppsætinu í deildinni. Vísir/Anton Fylkismenn gátu tekið toppsætið af Aftureldingu í toppslag liðanna í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld en 3-3 jafntefli liðanna í Árbænum þýðir að Mosfellingar eru með eins stigs forskot á Þrótt og Fylki þegar fjórar umferðir eru eftir.
Fylkismenn héldu að þeir hefðu skorað sigurmarkið og farið á toppinn á lokamínútunum en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Guðmundur Tyrfingsson kom Fylki í 1-0 í upphafi leiks, Óðinn Bjarkason jafnaði fyrir hálfleik og Haukur Örn Brink kom síðan Mosfellingum yfir snemma í síðari hálfleik. Fylkismenn snéru leiknum við á augabragði því Guðfinnur Þór Leósson jafnaði fyrst í 2-2 og Theodór Ingi Óskarsson kom Árbæingum yfir aðeins tveimur mínútum síðar. Mosfellingar áttu hins vegar svar því Joacim Holtan jafnaði tuttugu mínútum fyrir leikslok og hvorugu liðinu tókst síðan að tryggja sér sigurinn en vel var tekist á á spennandi lokamínútum. Njarðvíkingar eru komnir upp í fjórða sætið eftir 4-1 útisigur á Gróttu. Oumar Diouck (2 mörk), Arnar Helgi Magnússon og Valdimar Jóhannsson komu Njarðvíkingum í 4-0 á fyrstu 37 mínútum leiksins. Caden Robert McLagan minnkaði muninn fyrir Gróttu en nær komust þeir ekki. Njarðvíkurliðið vann þarna sinn fjórða leik í röð og er nú aðeins fjórum stigum frá toppsæti deildarinnar. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, var ekki sáttur og fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins. HK vann 2-1 sigur á Leikni og er í fimmta sætinu. Karl Ágúst Karlsson skoraði fyrst fyrir HK en Daði Bærings Halldórsson jafnaði. Atli Þór Gunnarsson tryggði HK öll stigin níu mínútum fyrir leikslok. HK-ingar eru aðeins einu stigi á eftir Njarðvík og hafa fimm stiga forskot á sjötta sætið.
Lengjudeild karla Afturelding Fylkir UMF Njarðvík HK Leiknir Reykjavík Grótta Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn