Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Árni Sæberg skrifar 14. ágúst 2026 15:29 Ólafur Þór Hauksson og Jón Óttar Ólafsson. Vísir Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara ekki vanhæfan til að rannsaka ætluð mútu- og peningaþvættisbrot Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns og njósnara, í tengslum við Samherjamálið svokallaða.
Landsréttur kvað upp úrskurð um kröfu Jóns Óttars, um að rannsókn embættis Héraðssaksóknara á hendur honum yrði felld niður, þann 31. júlí. Tvö mál tengd starfinu rannsökuð Í úrskurðinum er rakið að Jón Óttar, sem er ekki nafngreindur í úrskurðinum, hafi starfað hjá embætti sérstaks saksóknara á árunum 2009 til 2011. Hann hafi haft stöðu sakbornings í tveimur aðskildum málum vegna ætlaðra brota í því starfi. Fyrra málið hafi hafist með kæru sérstaks saksóknara, Ólafs Þórs Haukssonar, sem nú gegnir stöðu héraðssaksóknara, til ríkissaksóknara árið 2012 2012, í samræmi við þágildandi ákvæði lögreglulaga. Ríkissaksóknari hafi fellt það mál niður í febrúar 2023. Árið 2025 hafi önnur rannsókn hafist vegna ætlaðra brota varnaraðila í starfi hjá embættinu. Það mál varðar meintar njósnir um Róbert Wessmann og fleiri og gagnaleka frá embætti sérstaks saksóknara. Ríkissaksóknari hafi falið lögreglustjóranum á Suðurlandi rannsókn þess máls í maí í fyrra en áður hefði héraðssaksóknari sent ríkissaksóknara tilkynningu um grun um brot Jóns Óttars og jafnframt lýst því að hann teldi verulegan vafa leika á því að embætti héraðssaksóknara væri til þess bært að rannsaka það mál með hliðsjón af tengslum þess við fyrirrennara sinn, embætti sérstaks saksóknara. Einn níu sakborninga í Samherjamálinu Rannsókn þess máls sem deilt var um fyrir Landsrétti lúti ekki að ætluðum brotum Jóns Óttars í starfi hans fyrir sérstakan saksóknara heldur að máli sem varðar grun um mútur og peningaþvætti vegna starfa hans fyrir „B hf.“ Ljóst er að B ehf. er útgerðarfélagið Samherji og störf hans fyrir Samherja voru að fylgjast með Jóhannesi Stefánssyni, sem ljóstraði upp um meint brot félagsins í Namibíu. „Rannsókn þess máls mun vera lokið. Níu einstaklingar, varnaraðili þeirra á meðal, og nokkrir lögaðilar hafa réttarstöðu sakbornings í málinu,“ segir í úrskurðinum. Mikið þurfi til að koma Þá segir að um hæfi héraðssaksóknara til að stýra rannsókn máls gildi reglur stjórnsýslulaga, samanber ákvæði lögreglulaga, sem fjalla um hæfi lögreglustjóra og annarra sem fara með lögregluvald og um hæfi héraðssaksóknara við meðferð ákæruvalds gilda ákvæði laga um hæfi dómara. Samkvæmt lögunum skuli vísa máli frá dómi eftir að ákæra hefur verið gefin út, ef ákærandi hefur verið vanhæfur til að höfða málið eða lögreglustjóri hefur verið vanhæfur til að rannsaka það. „Sú meginregla hefur ítrekað verið staðfest í dómaframkvæmd að afstaða til atriða er varða rannsókn sakamáls er tekin við dómsúrlausn máls, ef ákæra er gefin út, eða eftir atvikum í skaðabótamáli ef ekki kemur til útgáfu ákæru. Þarf mikið til að koma svo dómstólar úrskurði að yfirstandandi rannsókn sé ólögmæt og henni skuli hætt.“ Grunur um brot Jóns Óttars í opinberu starfi hjá sérstökum saksóknara, forvera embættis héraðssaksóknara, geti að réttu lagi ekki leitt til vanhæfis héraðssaksóknara við rannsókn og saksókn annarra og alls óskyldra mála á hendur honum. Rannsókn og ákvörðun um saksókn þeirra mála sem varða ætluð brot Jóns Óttars í starfi sé ekki á höndum Héraðssaksóknara og aðkoma embættisins að þeim málum afmarkist við lögbundnar skyldur embættisins við kæru og tilkynningar til ríkissaksóknara, skýrslugjöf hjá rannsakanda og umsögn um mögulega bótaskyldu ríkisins. Eðlileg tjáning Varðandi þátttöku héraðssaksóknara, Ólafs Þórs, í opinberri umfjöllun um ætluð brot Jóns Óttars í starfi hjá sérstökum saksóknara vísi hann fyrst og fremst til viðbragða hans við umfjöllun fjölmiðla vorið 2025 um starfsemi fyrirtækis Jóns Óttars en fjölmiðlar hafi leitað álits hans í kjölfar ítarlegs fréttaflutnings af starfsemi fyrirtækisins. „Með hliðsjón af stöðu [Ólafs Þórs] var eðlilegt að hann tjáði sig um ætluð brot varnaraðila. Voru þau ummæli sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum, með hliðsjón af þeim atvikum sem voru til umfjöllunar, hófstillt og í samræmi við tilefnið. Ekki er fallist á það með varnaraðila að þau leiði til þess að [Ólafur Þór] sé vanhæfur til að rannsaka önnur mál á hendur honum. Þá hefur varnaraðili ekki bent á nein atvik eða ummælisem tengjast rannsókn sóknaraðila á þætti hans í því máli sem hér er til umfjöllunarsem bent geti til þess að [Ólafur Þór] eða aðrir starfsmenn embættis hans hafi ekki gættóhlutdrægni við rannsókn á hans þætti í málinu.“ Kröfu Jóns Óttars hafi því verið hafnað.
Samherjaskjölin Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira