„Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 11:30 FH-ingurinn Ída Marín Hermannsdóttir og Blikinn Hrafnhildur Ása Halldorsdottir eru tveir markahæstu leikmenn Bestu deildar kvenna í fótbolta til þessa í sumar. Vísir/Anton/Vilhelm FH-konur taka á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liða Bestu deildar kvenna í fótbolta og án efa er hér um einn af úrslitaleikjunum um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Bestu mörkin ræddu stórleikinn í gær. „
Ræðum aðeins þennan stórleik á morgun. Bæði lið eru með 33 stig og það er sjaldan sem við komum inn í leik sem er kannski jafn mikil stemmning og spenna fyrir á þessum tímapunkti í deildinni. Hvernig eru ykkar tilfinningar gagnvart þessum leik?“ spurði Jóhann Fjalar Skaptason, umsjónarmaður Bestu markanna, sérfræðingana sína tvo. „Ég er ótrúlega spennt. Ég hallast meira að því að FH taki þennan leik en ég held að þetta verði hörkuleikur,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, sérfræðingur í Bestu mörkunum. Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir höfðu sínar skoðanir á stórleiknum í kvöld.Sýn Sport „Ég ætla að vera ósammála Báru núna því ég ætla að tippa á Blikana. Ég held að þær séu að græða á því að hafa farið í Evrópu af því að það sem Evrópa gerir er að hún fínpússar varnarleikinn,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, sérfræðingur í Bestu mörkunum. „Ég held þetta verði bara geggjaður leikur og frábært að fá þennan leik á þessum tímapunkti. Spáir ekki bara bongó og allir á völlum. Þessi lið eru bæði búin að vera mjög góð,“ sagði Margrét Lára. „Ég hefði sagt fyrir einhverju síðan að Breiðablik myndi taka þetta. Ég held að þetta sé svolítið tvíeggjað sverð sem Margrét kemur inn á. Það er rétt sem hún segir, það sem Evrópa gefur er að hún þéttir vörnina en það er líka búið að vera aðeins meira álag á þeim. Það er búið að vera mikið um veikindi og hálfur hópurinn var veikur. Þetta er mikil orka og svo er stutt í næsta leik. FH er líka heitasta liðið í deildinni eins og er,“ sagði Bára. „Þetta eru bara bestu liðin á Íslandi í dag og það er alltaf skemmtilegast að sjá bestu liðin etja kappi og bestu leikmennina. Það finnst mér líka spennandi fyrir þessa leikmenn sem hafa verið að standa sig frábærlega í sumar því þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir,“ sagði Margrét Lára en það má sjá alla umfjöllunina hér fyrir neðan. Leikur FH og Breiðabliks hefst klukkan 17.00 í kvöld. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og hefst útsendingin klukkan 16.45. Klippa: Bestu mörkin ræddu stórleik FH og Breiðabliks
Besta deild kvenna FH Bestu mörkin Breiðablik Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira