Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum Stefán Árni Pálsson skrifar 15. ágúst 2026 12:01 Lauren Lapomarda í leik vestanhafs. Þór/KA hefur gengið frá samningi við Lauren Lapomarda sem mun leika með liðinu út yfirstandandi tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Lapomarda er með bandarískt og ítalskt ríkisfang og kemur til Akureyrar frá Dallas Trinity FC í USL-deildinni í Bandaríkjunum.
Lapomarda er uppalin í Texas og hóf snemma að stunda knattspyrnu. Hún lék á hæsta stigi unglingaknattspyrnu í Bandaríkjunum og tók þátt í fjölmörgum alþjóðlegum mótum. Þá varð hún einnig landsmeistari með liðum sínum á yngri árum. Eftir farsælan feril í unglingaboltanum hélt hún í Texas-háskóla þar sem hún lék í fjögur ár. Þar spilaði hún 101 leik og var í byrjunarliðinu í hverjum einasta leik. „Það var ótrúleg upplifun að keppa á þessu háa stigi og koma fram sem fulltrúi fyrir Texas,“ segir Lapomarda um háskólaárin. Að loknu háskólanámi hélt hún til Ítalíu og samdi við Parma Calcio. Þar átti hún meðal annars samleið með Margréti Árnadóttur, sem gekk til liðs við Parma í upphafi árs 2022. Lapomarda sneri síðar aftur til Bandaríkjanna og gekk til liðs við Dallas Trinity FC, sem leikur í USL-deildinni. Nú liggur leið hennar hins vegar til Íslands þar sem hún mun klæðast treyju Þórs/KA það sem eftir lifir tímabils. „Ég er mjög spennt fyrir þessu nýja tækifæri á Íslandi. Ég hlakka til að halda áfram að vaxa sem leikmaður, upplifa nýja deild og menningu og, það sem er mikilvægast, að komast aftur á völlinn og spila fyrir liðið,“ segir hún. Lapomarda segir íslenska deild ekki vera sér algjörlega ókunnuga. Nokkrir fyrrverandi liðsfélagar hennar og leikmenn sem hún hefur mætt á ferlinum hafa leikið hér á landi og hún hefur því fengið nokkra innsýn í íslenskan fótbolta. „Ég vissi dálítið um deildina á Íslandi áður en ég komst í samband við félagið því nokkrir fyrrum liðsfélagar og leikmenn sem ég hef spilað með hafa spilað í deildinni. Ég hef heyrt dálítið um deildina í gegnum þær, en er mjög spennt að fá að upplifa þetta sjálf og kynnast deildinni og liðunum.“ Nýr kafli er því að hefjast hjá Lapomarda á Íslandi, þar sem hún fær tækifæri til að spila í íslensku deildinni með Þór/KA út tímabilið.
Besta deild kvenna Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira