Sér fram á að hröð skuldalækkun geti tvöfaldað virði Alvotech
Bandaríski fjárfestingabankinn Evercore telur Alvotech talsvert undirverðlagt á markaði og að hlutabréfaverðið geti hækkað skarpt með auknum rekstrarhagnaði og minnkandi skuldsetningu. Samkvæmt nýrri greiningu, sem er sögð byggja á varfærnum forsendum, þá er samt gert ráð fyrir að markaðssetning sumra mikilvægustu hliðstæðna Alvotech muni tefjast vegna deilna um einkaleyfi og að hámarkstekjur verði verulega undir þeim áætlunum sem stjórnendur hafa áður rætt um.
Tengdar fréttir
Bandarískur sjóður byggt upp um fimm prósenta stöðu í kjölfar útboðs Alvotech
Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.
Vonast eftir aukinni veltu með innkomu yfir þrjátíu nýrra erlendra sjóða
Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.
Þátttakan í útboði Alvotech fjármögnuð með láni frá breskum vogunarsjóði
Þátttaka Celtic Lux Holdings, annar stærsti hluthafi Alvotech og meðal annars í eigu stjórnarformannsins Róberts Wessman, í nýafstöðnu hlutafjárútboði var fjármögnuð með fjörutíu milljóna dala láni frá breskum sjóði þar sem allur eignarhluturinn í líftæknilyfjafélaginu var settur að veði.
Áfall fyrir keppinautinn í hliðstæðum við Simponi talið geta styrk stöðu Alvotech
Alvarlegar athugasemdir Evrópsku lyfjastofnunarinnar við framleiðsluaðstöðu kínverska líftæknifyrirtækisins Bio-Thera gætu styrkt stöðu Alvotech verulega á einum verðmætasta markaði félagsins á næstu árum. Bio-Thera hefur hingað til verið eini þekkti keppinautur Alvotech á markaði með hliðstæður við frumlyfið Simponi en Róbert Wessman hefur nýlega sagt að hann geri ráð fyrir að félagi verði í fararbroddi í sölu á því lyfi í Bandaríkjunum.
Gefur Alvotech nauðsynleg svigrúm og losar um óvissu sem vofði yfir félaginu
Yfir tuttugu milljarða hlutafjáraukning Alvotech átti ekki að koma á óvart með hliðsjón af þróun lausafjárstöðu á fyrsta fjórðungi og áformum um áframhaldandi miklar fjárfestingar, að sögn erlendra greinenda, en þeir segja stjórnendur núna hafa meiri sveigjanleika til að mæta rekstrarþörf félagsins auk þess sem búið sé að styrkja og einfalda fjárfestasöguna. Mikil velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaðarins vestanhafs í dag og gengið hækkað talsvert frá útboðsgenginu.