Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 10:31 Sigurgeir Árni Ægisson og félagar í Kaplakrika hafa haft í nógu að snúast í sumar áður en ný leiktíð hefst í Olís-deildinni. Sýn Sport FH-ingar hafa staðið í ströngu í sumar að koma íþróttasalnum í Kaplakrika í stand fyrir næsta tímabil í handboltanum. Nú hefur verið skipt um parket í þessum fornfræga íþróttasal.
Stefán Árni Pálsson heimsótti Kaplakrika og steig inn á nýja parketið sem nú er komið í staðinn fyrir það gamla sem orðið var 36 ára gamalt. „Það var orðið lúið. Það var búið að pússa það og slípa alveg niður, og svo var grindin á mörgum stöðum orðin léleg. Alls konar viðgerðir í gegnum tíðina, svo þetta var orðið tímabært,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH. Hann segir að gamla parketinu, sem svo margir eftirminnilegir leikir voru spilaðir á, hafi að mestu verið hent. „En það var nú eitthvað varðveitt svo það getur nú verið að það verði nú uppboð á einhverjum flísum, og að gamlar stjörnur sjái í hillingum parketið þar sem þeir gerðu einhverja meistaratakta,“ segir Sigurgeir Árni léttur. Gömlu stúkurnar nýttar fram yfir Evrópudeildina Stúkurnar í Kaplakrika eru einnig upprunalegar og til stendur að skipta þeim út einnig en því hefur þurft að fresta um sinn. „Það er aðeins flóknari framkvæmd. Stúkurnar eru ekki lagervara og það þarf að hanna þær út frá hverju húsi. Það er ýmislegt í þessu húsi sem þarf að sníða þetta að. Við vorum ekki nógu ánægðir með lausnina sem við fengum og það er verið að smíða ný útboðsgögn. Ef það er verið að gera þetta á annað borð þá þurfum við að vera fullkomlega sáttir með þetta,“ segir Sigurgeir Árni. Gömlu stúkurnar verða því áfram í Kaplakrika í haust þegar Aron Pálmarsson hefur þjálfaraferil sinn og stýrir lærisveinum sínum meðal annars í spennandi Evrópuleikjum: „Við erum að fara í Evrópudeildina sem hefst í lok næsta mánaðar. Við sáum það að nýja stúkan yrði aldrei klár fyrir það og hugsuðum því að það væri betra að bíða fram yfir Evrópudeildina,“ segir Sigurgeir Árni.
FH Olís-deild karla Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira