„Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Stefán Árni Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 19:26 Ingibjörg Sigurðardóttir er margreynd landsliðskona. Næsta verkefni hennar er að eignast sitt fyrsta barn. vísir/Anton Íslenska landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir, leikmaður Freiburg í Þýskalandi, er komin tuttugu vikur á leið og gengur hún með sitt fyrsta barn.
Hún greindi frá óléttunni í byrjun júlí. Í dag deilir hún með fylgjendum sínum hvernig meðgangan hefur áhrif á líf hennar og fótboltaferil. Í nýjustu uppfærslu sinni segir Ingibjörg að hún sé enn að æfa og leggja hart að sér en sé jafnframt að læra að stundum sé minna einfaldlega meira. „Ég er enn að æfa og leggja hart að mér en er líka að læra að stundum er minna meira,“ skrifar Ingibjörg. View this post on Instagram Hún segist vera afar hugfangin af því sem líkaminn er fær um að gera. „Ég er ótrúlega hissa á líkamanum og því að hann geti búið til alvöru barn?!? Mér finnst eins og við tölum ekki nóg um það,“ skrifar Ingibjörg. Þyngdin hefur aukist jafnt og þétt og segir Ingibjörg það einkennilega tilfinningu fyrir íþróttakonu að mæta á æfingu vitandi að hún sé einfaldlega „í verra formi“ en hún var. Hún segist þó njóta ferlisins og undirbúi sig nú fyrir fæðinguna líkt og um stærsta fótboltaleik lífs síns væri að ræða. „Ég er að verða þyngri og þyngri, sem er skrítið þegar maður er íþróttakona og mætir á æfingu vitandi að maður er bara að verða í verra formi. En ég nýt ferlisins og undirbý mig fyrir fæðinguna eins og hún sé stærsti fótboltaleikur lífs míns.“ Nýtt fótboltatímabil er jafnframt að hefjast í Þýskalandi og segir Ingibjörg það sérstaklega skrýtið að vera ekki að undirbúa sig fyrir fyrsta leik tímabilsins um helgina. „Það er líka sérstaklega skrýtið þessa vikuna þegar nýtt tímabil er að byrja og ég er ekki að undirbúa mig fyrir fyrsta leikinn um helgina.“ Þrátt fyrir að meðgangan sé spennandi og mikil forréttindi viðurkennir Ingibjörg að það sé erfitt að stíga tímabundið frá starfinu sem hún hefur helgað sig og inn í óvissuna sem tekur við. „Að vera ólétt er svo spennandi og mikil forréttindi, en það er ótrúlega erfitt að stíga frá starfinu sínu og inn í hið óþekkta.“ Hún segir að það komi dagar þar sem hún sé hrædd, kvíðin og hafi ekki mikla hvatningu til að æfa. Stuðningurinn frá fólkinu í kringum hana skipti því miklu máli. „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd, kvíðin og ekki með neina hvatningu til að æfa, en ég er svo þakklát fyrir frábæra liðsfélaga, þjálfara, fjölskyldu og vini sem standa þétt við bakið á mér.“ Ingibjörg heldur því áfram að æfa eftir því sem líkaminn leyfir en næstu mánuðir verða töluvert öðruvísi en hún hefur vanist á ferlinum. Í stað þess að undirbúa sig fyrir leiki með Freiburg og íslenska landsliðinu er hún nú að undirbúa sig fyrir stærsta verkefni lífsins – að verða móðir.
Þýski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Sjá meira