Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Sindri Sverrisson skrifar 20. ágúst 2026 07:32 Ardian Bardhi, forseti Dinamo City, mætti inn í klefa með seðlabúnt í tösku og gladdist með leikmönnum. Skjáskot/Youtube Formaður albanska knattspyrnufélagsins Dinamo City mætti með seðlabúnt í tösku beint inn í búningsklefa leikmanna og gladdist með þeim eftir að liðið komst í umspil Sambandsdeildar Evrópu. Hann lofaði leikmönnum enn meiri peningum komist liðið í gegnum umspilið.
Myndband af Ardian Bardhi, formanni Dinamo City, hefur vakið athygli en hann mætti sigurreifur inn í fögnuð leikmanna, opnaði tösku og henti peningabúntum á gólfið fyrir framan þá. Top Channel has released exclusive footage from Dinamo’s dressing room moments after their crucial qualification against Auda where President Ardian Bardhi arrives and rewards the team with money. 😂💰 The bonus if they eliminate Pafos, €500.000 ! pic.twitter.com/fwyKfsYhjT— Kuq e Zi 🇦🇱⚽️ (@KuqeZiFootball) August 18, 2026 Ástæðan fyrir fögnuðinum er sú að Dinamo, sem er ríkjandi bikarmeistari í Albaníu, hafði unnið lettneska liðið Auda, 4-0 á heimavelli, eftir að hafa tapað útileiknum 1-0. Það kom liðinu áfram á lokastig undankeppni Sambandsdeildarinnar. Háar fjárhæðir frá UEFA fylgja því að ná árangri í Evrópu og nú er Tirana, líkt og Víkingur Reykjavík, aðeins einu einvígi frá risaverðlaunafé sem fylgir því að ná inn í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrir það eitt fæst hátt í hálfur milljarður, eða um 450 milljónir króna, til viðbótar við fyrra verðlaunafé sem félögin hafa þegar tryggt sér. Dinamo spilar nú við kýpverska liðið Pafos í tveggja leikja einvígi um að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og er fyrri leikur liðanna í Albaníu í kvöld. Fregnir herma að Bardhi sé búinn að lofa leikmönnum 500.000 evrum, eða rúmum 70 milljónum króna, nái liðið að slá Pafos út.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ Sjá meira