Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2026 11:29 Strætisvögnum verður safnað við Sólfarið við lok menningarnætur til að koma öllum gestum heim. Strætó Ókeypis skutlur munu aka á milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju á laugardag þegar Menningarnótt Reykjavíkur fer fram. Frá klukkan 22 verður hægt að taka strætó ókeypis frá Sólfarinu í öll hverfi Reykjavíkur. Allir vagnar verða notaðir til að koma fólki heim.
Akstur Strætó verður með mjög breyttu sniði á laugardag vegna Menningarnætur. Aukin tíðni verður á flestum leiðum allan daginn og ókeypis skutlur aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju auk þess sem breytingar verða á leiðum vegna lokana. Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær. Endastöð á BSÍ og Skúlagötu Ókeypis skutlur aka á vegum Reykjavíkurborgar og Strætó milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju frá klukkan 7 til klukkan 23:15. Nýjung í ár er að skutlurnar koma einnig við á Njarðargötu frá klukkan 7 til 12:00, sem sérstaklega er ætlað að gera fólki kleift að nota skutluna til að fylgjast með Reykjavíkurmaraþoninu. Fólk á bíl er sérstaklega hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll og nýta skutluþjónustuna. Leiðakerfið verður með talsvert breyttu sniði vegna takmarkana á umferð í miðborginni. Biðstöðvar á Lækjartorgi verða meðal annars óvirkar en endastöð verður á BSÍ yfir daginn og á Skúlagötu eftir klukkan 15:00. Viðamesta verkefnið að koma öllum heim Í tilkynningu frá Strætó kemur fram að viðamesta verkefnið sé við lok Menningarnætur þegar koma þarf öllum gestum heim. Þá verði öllum tiltækum vögnum beint að Sólfarinu við Sæbraut þar sem þeir taka þátt í að flytja þúsundir gesta heim á leið eftir að hátíðarhöldum lýkur. Klukkan 21:30 hætta allar almennar leiðir akstri og öllum vagnaflota Strætó verður ekið að Sólfarinu við Sæbraut þar sem hann fær það verkefni að skila gestum Menningarnætur til síns heima. Frá klukkan 22:00 til 23:00 verður vögnum ekið í öll hverfi á höfuðborgarsvæðinu endurgjaldslaust. Allir tiltækir vagnar taka þátt í tæmingunni en í tilkynningu segir að gera megi ráð fyrir að 70 til 80 vagnar verði notaðir í það verkefni. Áætlunarferðir á leiðum 50 til Akraness, 51 til Selfoss og 55 til Keflavíkur fara einnig frá biðstöðinni á Skúlagötu kl. 22:40 skv. gjaldskrá. Eftir klukkan 23 tekur breyttur akstur við, með þeim takmörkunum sem eiga við yfir daginn. Næturstrætó hefur svo akstur klukkan 1:20. Upplýsingar um akstur Strætó á Menningarnótt má finna í biðskýlum Strætó á degi Menningarnætur og á Strætó.is. Strætó hvetur alla þá sem geta til að velja almenningssamgöngur, enda besta leiðin til að heimsækja miðborgina, en hvetur farþega jafnframt til að sýna þolinmæði og biðlund þar sem búast má við þétt setnum vögnum allan daginn.
Reykjavík Menningarnótt Strætó Samgöngumál Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira