Lífið samstarf

Hlaupa fyrir Ljósið í Reykja­víkur­mara­þoninu

Ljósið
Frá hlaupinu í fyrra. Það er alltaf góð stemning hjá stuðningsliði Ljóssins.
Frá hlaupinu í fyrra. Það er alltaf góð stemning hjá stuðningsliði Ljóssins.

Öflugir hópar og einstaklingar hlaupa til styrktar Ljósinu í Reykjavíkurmaraþoni á morgun. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. 

„Reykjavíkurmaraþonið er okkar stærsta einstaka fjáröflun og skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Það sem mun safnast í ár munum við nýta í nýja húsnæðið sem við erum að fara að flytja í til að gera það bæði fallegt og faglegt,“ segir Regína Björk Jónsdóttir þjónustu-og samskiptastjóri Ljóssins. 

Meðal hópa sem hlaupa til styrktar miðstöðinni eru þjálfarar Ljóssins, stórfjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn, ungir fótboltastrákar sem hlaupa fyrir pabba vinar þeirra og starfsfólk Avians. Hóparnir hafa búið til skemmtileg myndbönd sem sjá má hér fyrir neðan.

Þjálfarar Ljóssins

,,Á hverjum degi í Ljósinu fáum við þjálfararnir þann heiður að ganga við hlið fólks sem er að byggja upp þrek og virkni eftir krabbameinsgreiningu. Við sjáum ótrúlegan kraft hjá Ljósberum okkar sem mæta og rækta heilsuna á sínum eigin forsendum.

Í ár ákváðum við að taka sjálf sprettinn og hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu til að styðja við þetta mikilvæga starf. Við mætum ekki bara til að hlaupa, heldur ætlum við að færa Ljósastemninguna út á götur borgarinnar og drita út hlýju og hvatningu til allra annarra hlaupara sem verða með okkur á brautinni!," segir Guðrún Erla Þorvarðardóttir íþróttafræðingur.


Karfarnir

,,Stórfjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn þar sem afi og amma bjuggu ætlar að reima á sig hlaupaskóna. Ein okkar stendur í stórræðum og hefur Ljósið reynst henni og hennar nánustu vel. Við viljum því sýna þakklæti okkar í verki og söfnum áheitum fyrir Ljósið með því að hlaupa öll sem eitt, hvert á eigin forsendum og dekkum allar vegalengdir hlaupsins. Aldursbilið er breitt, yngsti þátttakandi er ekki orðinn 1 árs og sá elsti 77 ára. En saman náum við markinu og styðjum í leiðinni okkar konu við að ná sínu marki og við Ljósið í þeirra mikilvæga starfi."


Ungir fótboltastrákar

Stjörnustrákar hlaupa fyrir Ljósið og pabba vinar síns.

,,Fyrir stuttu greindist Baba, pabbi vinar okkar með mjög alvarlegt 4. stigs krabbamein og stendur fjölskyldan nú frammi fyrir risastóru verkefni sem enginn óskar sér að takast á við. Ísak er einn af okkar bestu vinum og við óskum þess svo innilega að allt muni ganga vel fyrir fjölskylduna. Agnes og Baba eru frábærir foreldrar og eru alltaf á hliðarlínunni að klappa okkur strákana áfram, nú viljum við klappa þau áfram! Flest okkar þekkja einhvern sem hefur notið þjónustu Ljóssins og því langar okkur að leggja okkar af mörkum til þessa mikilvæga starfs. Við skorum líka á fleiri vini okkar að koma með og skrá sig,"  segir Hilmar Örn Darrason.


Avians 

Um 70 starfsmenn frá fyrirtækinu Avians ætla að hlaupa saman fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst. Við vitum ekki til þess að jafn stór hópur hafi áður hlaupið saman fyrir góðgerðarfélag í maraþoninu, þvílíkur heiður!

Hópurinn sameinast um eitt markmið: að styðja við starf Ljóssins og leggja sitt af mörkum til þeirra sem leita hingað. Tengingin við Ljósið er mismunandi, sum eiga aðstandendur eða samstarfsfélaga sem hafa leitað hingað og önnur hafa sjálf nýtt sér þjónustuna. Eitt eiga þau öll sameiginlegt, Ljósið á sérstakan stað í hjarta þeirra

Hér er að finna leiðbeiningar um hvernig heita má á hlaupara og hópa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.