Innlent

Seinka skýrslu­töku maltensku læknanna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.
Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands. Vísir/Vilhelm

Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag og stóð til að taka skýrslu af læknum í Möltu sem eiga að hafa séð um meðferð brotaþola ytra.

Tekin var skýrsla af fyrsta lækninum sem talaði ensku með aðstoð túlkar. Þegar um tuttugu mínútur voru búnar og bæði sækjandi og verjendur voru búnir að spyrja spurninga stakk sækjandi upp á því að skýrslan yrði endurtekin.

Erfiðlega gekk fyrir túlkinn að þýða mál læknisins og sér í lagi þegar litið var til læknisfræðilegra hugtaka sem læknirinn notaði.

Tekið var undir tillögu sækjanda og ákveðið að endurtaka skýrslutökuna seinna. Þá var skýrslutöku hinna læknanna frestað um óákveðinn tíma þar til nýr túlkur fæst.

Skýrslutaka heldur samt sem áður áfram í dag, meðal annars yfir íslenskum læknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×