„Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2026 13:24 Jón Þór Hauksson ber sínum gömlu vinnuveitendum hjá Stjörnunni ekki vel söguna. vísir/Sigurjón Jón Þór Hauksson segist klárlega hafa gert mistök með því að gerast þjálfari Stjörnunnar í sumar. Hann hafi komið inn í neikvætt andrúmsloft eftir „allsherjar fíaskó“ við brottrekstur forvera síns og aldrei fundist hann velkominn.
Jón Þór var rekinn fyrir helgi eftir aðeins rúma tvo mánuði sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann lýsir því í viðtali við Gunnlaug Jónsson í Íþróttavarpi RÚV að þrátt fyrir allt hafi brottreksturinn komið sér á óvart. Hann tók við af Jökli Elísabetarsyni sem rekinn var í júní og segir Jón Þór afar illa hafa verið staðið að þeim brottrekstri og leikmenn saknað Jökuls. „Við skulum bara orða hlutina alveg eins og þeir eru. Þegar þjálfaraskiptin eru gerð er það bara eitt allsherjar fíaskó. Það er bara illa staðið að þeim þjálfaraskiptum, það verður bara að viðurkennast og segjast alveg eins og er,“ segir Jón Þór í viðtalinu við sveitunga sinn frá Akranesi, Gunnlaug Jónsson. „Þegar þú skiptir um þjálfara þá gerir þú sem stjórnarmaður eða stjórnandi í félaginu hreint fyrir þínum dyrum, gagnvart leikmannahópnum og öðrum. Það eru einhverjir hlutir ekki í lagi innan klúbbsins sem gerir að verkum að þessi ákvörðun er tekin, og þá er ekkert nóg að henda einum manni út og halda að allt lagist,“ segir Jón Þór. Loftið hafi hins vegar aldrei verið hreinsað. „Þar af leiðandi fæ ég skítinn í fangið strax frá fyrsta degi, sem eru ekki ákjósanlegar aðstæður fyrir nýjan mann að ganga inn í á vinnustað. Ég finn það nánast frá fyrsta degi að ég er ekki velkominn.“ „Strax málaður upp sem vondi kallinn“ Aðspurður hvort hann hefði fundið það frá leikmönnum eða stjórnendum svaraði Jón Þór: „Umhverfinu öllu. Innan félagsins þá finn ég mjög fljótlega að hjá hluta fólksins er ég strax málaður upp sem vondi kallinn í þessu.“ Margir úr leikmannahópnum hafi saknað Jökuls. „Ég fann fyrir því á fyrsta degi. Það fór ekki framhjá neinum sem fylgist með fótbolta að sú var raunin, og svo sem ekkert athugavert við það. Jökull er góður drengur og hörkuöflugur þjálfari, miðað við það litla sem ég hef kynnst af honum. Þetta var mikið reiðarslag fyrir leikmannahópinn og ég geng bara inn í það og ber virðingu fyrir því. Það er í sjálfu sér mér óviðkomandi og ég reyndi bara að koma inn með þeim hætti að áreitið væri sem allra minnst til að byrja með,“ segir Jón Þór. Í áfalli yfir stöðunni hjá félaginu Í viðtalinu ber Jón Þór Stjörnunni vægast sagt ekki vel söguna og segir það til að mynda hafa komið sér í opna skjöldu að ekki væri starfandi styrktarþjálfari, sjúkraþjálfari eða fitness-þjálfari hjá félaginu. Hann hafi verið í áfalli yfir stöðunni. Þá hafi hann ekki fengið að ráða aðstoðarmanni sínum, ekki heldur þegar Hrannar Bogi Jónsson hætti óvænt í lok júní sem aðstoðarþjálfari. Jón Þór hafði sínar hugmyndir um eftirmann Hrannars Boga en lítill tími var til stefnu. „Ég fæ ekkert rosalega mikinn stuðning við þeim hugmyndum og þar í rauninni koma fyrstu rauðu flöggin fram, strax á fyrstu dögum í starfi. Eftir á að hyggja fékk ég ekki nærri því nógu góðan stuðning þegar þetta mál kemur upp.“ Veikindi hafi orðið að ljótum sögum Undir stjórn Jóns Þórs hafði Stjarnan unnið tvo leiki í röð áður en liðið tapaði svo fyrir Fram í lokaleik hans í brúnni. Eftir brottreksturinn hafa ýmsar sögur farið á flug og verst þykir Jóni Þór að veikindi hans hafi komið af stað ljótum sögum. Þau hafi valdið fjarveru hans á æfingum. „Ég er með undirliggjandi veikindi og hef átt í erfiðleikum með magann á mér. Það er eitthvað sem ég erfði frá föður mínum heitnum. Ég er veikur fyrir í maga og með magasár og bólgur,“ segir Jón Þór sem varð að hætta við að stýra æfingu á föstudeginum fyrir leikinn við Fram þegar hann hafi verið orðinn slappur. „Það fór nú ekki betur en svo að ég rétt komst inn í klefa uppi í Miðgarði áður en uppköstin byrjuðu. Ég keyri heim upp á Akranes við hálf illan leik,“ segir Jón Þór sem hefur áður glímt við þessi veikindi og tengir þau við álag og stress. „Það er náttúrlega ótrúlegt að þessu sé snúið upp í bara ljótar sögur. Það er auðvitað bara skammarlegt fyrir félagið að minn heiður og mín heilindi séu dregin í efa í starfi. Að ég hafi ekki sinnt starfinu mínu og verið fjarverandi á æfingum, og farið snemma heim af æfingum. Það er tilkomið vegna þessara veikinda, að undanskilinni einni jarðarför.“ „Það þarf illan hug til að búa til svona sögur upp úr þessu. Það er alveg ljóst að það eru einhverjir aðilar innan Stjörnunnar sem eru tilbúnir til þess.“
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira