Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2026 14:01 Breiðablik er á toppi Bestu deildarinnar en liðið virðist eiga mikið inni þegar kemur að föstum leikatriðum. vísir/Diego Toppliði Bestu deildar kvenna í fótbolta, Breiðabliki, virðist nánast fyrirmunað að skora mörk úr föstum leikatriðum. Íslandsmeistararnir hafa raunar fengið á sig fleiri mörk en þeir hafa skorað úr hornspyrnum í sumar en málið var tekið fyrir í Bestu mörkunum á föstudaginn.
Björn Sigurbjörnsson og Katrín Ásbjörnsdóttir ræddu um þennan veikleika Blikakvenna sem aðeins hafa skorað þrjú mörk úr 113 hornspyrnum á leiktíðinni, þrátt fyrir að hafa framúrskarandi spyrnumenn á borð við Öglu Maríu Albertsdóttur til að taka spyrnurnar. „Ef þú ert svona lið sem er svona „dominant“ lið með boltann, eins og Breiðablik, sem fær fullt af hornum, þá verður þú að nýta fleiri horn. Á móti liðum sem pakka í vörn á móti þér, svo boltinn endi frekar í horni en með skoti á markið, þá verður þú að nýta þér þetta,“ sagði Björn og benti á að Breiðablik væri nú meira að segja með Arsenal-manninn Gunnar Birgisson í þjálfarateyminu sem ætti að vera með nokkur trix frá sínu liði í ensku úrvalsdeildinni. Klippa: Bestu mörkin - Blikar í veseni með hornspyrnur Að sama skapi hafa Blikar fengið á sig fjögur mörk úr hornspyrnum mótherjanna þó að þær séu mun færri. „Þetta er lið sem að var eiginlega ekki hægt að skora á úr föstum leikatriðum fyrir ári síðan, og skoraði fullt. Auðvitað vantar Barbáru, sem var oft skotmarkið, en það eru þarna Elín Helena, Kristín Dís og Karitas og fleiri. Það er eflaust verið að vinna með þetta en þarna vantar attitjúd,“ sagði Björn. Katrín var áður leikmaður Breiðabliks og býst við meira af sínu gamla liði: „Það þarf að tímasetja hlaupin betur og fara yfir þetta á æfingum. Ég man að þegar Nik [Chamberlain] stýrði liðinu þá var farið rosalega vel yfir hornspyrnur, og margar týpur af hornspyrnum. Ég veit ekki hvernig þetta er núna en það er eins og þetta sé ekkert æft,“ sagði Katrín.
Besta deild kvenna Breiðablik Bestu mörkin Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira