Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2026 14:20 Fjöldi fossa er á Fimmvörðuhálsi framan af göngunni þegar haldið er norður frá Skógafossi. Unsplash/Ben Stewart Ferðafélag Íslands, Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli hafa sent frá sér viðvörun vegna hættulegra aðstæðna sem skapast hafa á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.
Í tilkynningu félaganna kemur fram að hopun jökulsins undanfarin ár hafi valdið því að gil og sprungur hafi opnast á svæðinu. Á kaflanum milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála hafi jafnframt myndast brattar brekkur og skriður þar sem áður hafi mátt finna snjó eða jökulís. Þá vara félögin sérstaklega við snjóbrúm sem komið hafa í ljós eftir að vetrarsnjóinn tók upp. Undir þeim renna jökulár og getur verið stórhættulegt að fara yfir þær eða nálgast þær. Félögin hvetja göngufólk til að leggja ekki af stað yfir hálsinn nema það sé vel búið útivistarbúnaði og fatnaði og hafi kynnt sér aðstæður fyrir fram. Ekki sé ráðlagt að ferðast eitt á þessari leið heldur er mælt með því að fara í hópi, helst með reyndum leiðsögumanni sem þekki svæðið. Félögin sem koma að rekstri og viðhaldi leiðarinnar vinni nú sameiginlega að því að finna nýja og öruggari leið fram hjá þeim köflum þar sem hættan hefur skapast. Á meðan er skorað á ferðafólk að sýna aðgát, kynna sér aðstæður vel og hafa öryggi ávallt í fyrirrúmi.
Ferðalög Fjallamennska Fimmvörðuháls Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira