Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 07:00 Ég segi já til að sjá á laugardaginn og hvet aðra til að gera slíkt hið sama. Hér eru fjórar ástæður fyrir því að greiða atkvæði með því að fara í viðræður á laugardag. 1. Við höfum allt að vinna og engu að tapa Engin aðlögun íslenskra laga fer fram meðan á aðildarviðræðum stendur. Ekkert breytist fyrr en og ef við ákveðum að ganga inn, í annarri atkvæðagreiðslu um samning sem þá mun liggja fyrir. Þetta hefur Evrópusambandið staðfest. Skrefið sem við stígum með því að segja já þann 29. ágúst er varfærið fyrsta skref. Mun afdrifaríkara er að segja nei og fá ekki að sjá hvað samningur hefði þýtt. 2. Ekki hafna hundruðum milljarða í mögulegum ávinningi án þess að vita meira Íslendingar greiða margfalt hærri vexti en aðrar Evrópuþjóðir og búa við hærri verð vegna fákeppni sem þrífst í skjóli krónunnar. Þegar þetta er lagt saman er um að ræða hundruð milljarða króna á ári sem leggjast á íslenskar fjölskyldur og atvinnulíf. Hluti fyrirtækja í atvinnulífinu gerir hins vegar nú þegar upp í evrum og njóta kjara og öryggisins sem fylgir. Ættu þessi kjör ekki að gilda fyrir allt samfélagið en ekki bara stærstu fyrirtækin? 3. Við styrkjum fullveldi með góðum samningum Nágrannaríki okkar Danmörk, Svíþjóð og Finnland gengu inn í Evrópusambandið sem fullvalda þjóðir og eru enn fullvalda þjóðir. Teljum við að Danmörk sé ekki lengur fullvalda þjóð? Fullveldi okkar felst ekki í því að þurfa að standa einangruð og áhrifalaus utan við alþjóðlegt samstarf. Fullveldi felst heldur ekki í því að telja alla samninga við aðrar þjóðir fyrir fram hættulega. Við eigum að hafa sama kjark og grannar okkar til að setjast að samningaborðinu og sjá hverju við getum náð fram. 4. Öruggara Ísland Bandaríkjaforseti talar um að ná yfirráðum yfir Grænlandi og lýsir yfir að það muni gerast í forsetatíð sinni. Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada er núna skollið á þar sem Bandaríkin hafa sett 50% tolla á vörur frá Kanada sem hefur augljós áhrif á vöruverð. Bandaríkin eru farin að beita tollum sem vopni. Evrópusambandið er tollabandalag sem stendur saman gegn þessum tilburðum. Ísland stendur þar fyrir utan. Það er nýr veruleiki fyrir Norðurlandaþjóðir að yfirlýsingar Bandaríkjanna ógni okkar öryggishagsmunum. Ég vil fá úr því skorið hverju það myndi bæta við öryggi Íslands að tilheyra blokk 27 ríkja í Evrópusambandinu, í stað þess að standa fyrir utan. Næsta kynslóð mun spyrja af hverju við vildum ekki sjá samning Á skiltum um land allt blasir nú við áróður um milljarðakostnað við ESB. Þar er aðild ranglega sögð milljarðakostnaður fyrir Íslendinga. Tölurnar sem eru nefndar eru rangar og taka ekkert tillit til ávinnings. Talað er um glatað fullveldi og tapaðar auðlindir. Engin þjóð hefur hins vegar glatað fullveldi sínu með þessu samstarfi Evrópuþjóða og Evrópusambandið eignast ekki náttúruauðlindir aðildarríkja. Af hverju heyrum við aldrei dæmið af aðildarríkinu sem glataði auðlindum sínum við inngöngu? Vegna þess að dæmið er ekki til. Kynslóðin sem tekur við landinu á heimtingu á betra svari en að vildum ekki leggja í vinnuna við að klára samning. Eða að við sögðum nei því tíminn hentaði ekki og við vildum ekki vita hvað stæði okkur til boða. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Skoðun Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun