Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 07:59 Jón Þór Hauksson opnaði sig um stutta dvöl hjá Stjörnunni í Íþróttavarpi RÚV. vísir / jón gautur Sérfræðingar Stúkunnar fóru ekki mjúkum höndum um stjórn Stjörnunnar og leikmenn liðsins í kjölfar viðtals við fyrrverandi þjálfara liðsins, Jón Þór Hauksson, sem sagði frá erfiðri reynslu sinni á annars stuttum tíma í starfi.
Í viðtali við Gunnlaug Jónsson í Íþróttavarpi RÚV sagðist Jón Þór klárlega hafa gert mistök með því að gerast þjálfari Stjörnunnar í sumar. Hann hafi komið inn í neikvætt andrúmsloft eftir „allsherjar fíaskó“ við brottrekstur forvera síns og aldrei fundist hann velkominn. Skagamaðurinn var rekinn fyrir helgi eftir að hafa tekið við liðinu af Jökli Elísabetarsyni sem var vel liðinn meðal leikmanna. Jón Þór sagist strax hafa verið málaður upp sem vondi karlinn innan herbúða liðsins. Jón Þór ber Stjörnunni vægast sagt ekki söguna vel og segir það til að mynda hafa komið sér í opna skjöldu að ekki væri starfandi styrktarþjálfari, sjúkraþjálfari eða fitness-þjálfari hjá félaginu. Hann hafi verið í áfalli yfir stöðunni. Stórir póstar, há laun en ekki með þetta á hreinu Málið var tekið fyrir í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Klippa: Stúkan um mál Stjörnunnar og Jóns Þórs „Það kemur mér á óvart að hann stigi inn í umhverfi þar sem að er hvorki fitness þjálfari né styrktarþjálfari starfandi. Ef það er raunin þá þykir mér það bara ótrúlegt,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, sérfræðingur Stúkunnar og kollegi hans Albert Brynjar Ingason tók undir: „Maður heyrði þetta áður en hann kom þarna inn. Að aðstæðurnar væru svona. Maður horfir á leikmannakaup hjá þeim. Þeir kaupa rosalega stóra pósta, borga há laun og eru svo ekki með þessu atriði á hreinu. Ótrúlegt.“ Staðan ekki slæm út af Jóni Þór Albert hélt síðan áfram um stöðu liðsins: „Staða liðsins er slæm. En hún er ekki slæm út af Jóni Þór,“ bætti Albert við. „Hún er slæm út af stjórn og leikmönnum liðsins. Maður horfir á stóra pósta. Þú ert með markmann sem er ekki búinn að skutla sér í sumar, fer svo og giftir sig í miðju móti og vælir yfir því. Þú ert með varnarmenn sem eru alltaf skrefinu á eftir, miðjumenn sem hlaupið er yfir leik eftir leik og framherja sem eru ekki í formi.“ Frá leik hjá Stjörnunni í sumarAnton/Vísir „Maður horfir líka á þetta þeim augum að þetta lið ætlaði sér að verða Íslandsmeistarar. Þá hugsar maður bara hvar hugarfar þessara manna er. Þegar deildin er farin, það er búið að henda þér út úr bikar á móti Lengjudeildarliði. Alvöru sigurvegarar vilja breytingar. Þeir eru ekki að væla yfir því að ákveðinn maður sé látinn fara.“ Ljótar sögur í veikindum Það sem sló fólk eina mest í frásögn Jóns Þórs var það þegar að hann sagði veikindi sín hafa komið af stað ljótum sögum. En veikindin ollu fjarveru hans á æfingum. Það er náttúrlega ótrúlegt að þessu sé snúið upp í bara ljótar sögur. Það er auðvitað bara skammarlegt fyrir félagið að minn heiður og mín heilindi séu dregin í efa í starfi. Að ég hafi ekki sinnt starfinu mínu og verið fjarverandi á æfingum, og farið snemma heim af æfingum. Það er tilkomið vegna þessara veikinda, að undanskilinni einni jarðarför. - Jón Þór í Íþróttavarpi RÚV „Það voru leikmenn sem héldu Jökli svona lengi í starfi og það voru leikmenn sem vældu Jón Þór út,“ sagði Albert. Jökull Elísabetarson var þjálfari Stjörnunnar áður en Jón Þór tók við.Vísir/Diego „Ef leikmenn vissu að hann væri að glíma við eitthvað magavesen þá er þetta bara ljótt. Ég heyrði þetta úr öllum áttum. Að það væri að koma úr klefanum að Jón Þór væri alltaf strax farinn og þar fram eftir götunum. Þeir vissu hvað væri að gerast og eru að koma með svona sögur. Það er bara fáránlegt.“ Sigurbjörn tók undir það: „Það er bara algjör skandall. Fáránlegt og ljótt. Menn verða að pæla aðeins í sjálfum sér í þessu. Hvað er ég að láta út í kosmósið?“ Umræðuna um Stjörnuna og mál Jóns Þórs úr Stúkunni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Besta deild karla Stjarnan Stúkan Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira