Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 12:17 Albert Brynjar Ingason og Sigurbjörn Hreiðarsson, sérfræðingar Stúkunnar, voru ekki sammála um það hvað hefði átt að gera í umdeildu atviki í leik ÍA og FH í Bestu deildinni um nýliðna helgi. Vísir Sérfræðingar Stúkunnar tókust á um umdeilt atvik sem átti sér stað í leik ÍA og FH upp á Skaga í Bestu deildinni á dögunum. Þjálfari ÍA, fyrrverandi sérfræðingur þáttarins, krafðist þess að atvikið yrði tekið fyrir.
Lárus Orri, þjálfari ÍA, óskaði eftir því að sérfræðingarnir í Stúkunni myndu skoða atvikið þegar Skagamenn vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þar sem boltinn fór í hendina á Baldvin Kára Helgasyni. „Það væri ágætt ef sérfræðingarnir myndu kíkja á hendina í fyrri hálfleik. Ég veit ekki hvað við höfum fengið á okkur mörg víti fyrir hendi og svo var neglt í hendina á honum og þeir verða að skoða það í stúkunni,“ sagði Lárus og var bænheyrður í gær. Atvikið var tekið fyrir í Stúkunni en ekki voru sérfræðingar þáttarins sammála. „Pjúra hendi. Er hendin í eðlilegri stöðu? Nei. Víti,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, einn af sérfræðingum Stúkunnar og var fljótur að kveða upp sinn dóm. Albert var ekki til í að stökkva á þann vagn með Sigurbirni. „Finnst þér hann vera að gera sig eitthvað breiðari?“ spurði Albert þá og beindi orðum sínum að Sigurbirni sem svaraði: „Bíddu. Ef hendin væri ekki þarna þá færi boltinn á inn í,“ svaraði Sigurbjörn. Albert benti þá á að þetta gerðist allt af rosalega stuttu færi. „Hann er alveg ofan í honum nánast.“ Umræðuna í Stúkunni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Besta deild karla ÍA FH Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira