Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Birgir Olgeirsson skrifar 25. ágúst 2026 14:21 Lindsay Clancy við réttarhöldin yfir sér í Massachusetts. Hún hefur viðurkennt að hafa banað börnum sínum þremur en verjendur hennar segja geðrof eftir fæðingu hafa svipt hana sakhæfi. Bandarísk móðir hefur viðurkennt að hafa orðið börnum sínum þremur að bana í janúar 2023. Réttarhöldin yfir henni hafa staðið yfir í rúmar fjórar vikur og styttist í að málið verði lagt fyrir kviðdóm. Hann mun skera úr um hvort móðirin hafi verið sakhæf þegar hún banaði börnunum.
Málið hefur orðið að miklu deilumáli í Bandaríkjunum. Annars vegar eru þeir sem hafa sýnt móðurinni samhug og segja málið beina kastljósinu að skorti á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Þar á móti eru þeir sem telja að refsa beri henni að fullu enda hafi morðin verið skipulögð. Móðirin heitir Lindsay Clancy. Hún er 36 ára fyrrverandi hjúkrunarfræðingur og bjó í Duxbury í Massachusetts ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Patrick Clancy, og börnum þeirra þremur. Cora var fimm ára, Dawson þriggja ára og Callan átta mánaða. Glímdi við alvarlega vanlíðan Andlegri heilsu Clancy hrakaði eftir fæðingu Callans árið 2022. Hún glímdi við mikinn kvíða og svefnleysi og leitaði til nokkurra lækna og annarra meðferðaraðila. Geðlyfjum hennar var ítrekað breytt en Clancy taldi líðanina versna. Í desember sagði hún Patrick og móður sinni að hún hefði hugsað um að skaða börnin. Systir hennar hefur borið fyrir dómi að Clancy hafi á sama tíma fengið sjálfsvígshugsanir daglega. Lindsay Clancy hefur setið í hjólastól við réttarhöldin. Hún lamaðist fyrir neðan mitti eftir að hafa stokkið út um glugga á annarri hæð í sjálfsvígstilraun kvöldið sem hún banaði börnum sínum. Clancy hringdi í neyðarlínuna, leitaði á bráðamóttöku og reyndi að komast í dagmeðferð. Hún fékk ekki inngöngu þar en lagði sig síðar inn á McLean-geðsjúkrahúsið. Hún var útskrifuð 5. janúar 2023, nítján dögum áður en börnin dóu. Enginn hafði varað Patrick við því að skilja hana eftir eina með þeim. AP hefur rakið meðferð Clancy og samskipti hennar við heilbrigðisstarfsfólk. Daginn fyrir verknaðinn átti Clancy fjarfund með geðlækni. Hún virtist þunglynd og kvíðin en sagði hvorki frá röddum né áformum um að skaða börnin eða sjálfa sig. Sendi eiginmanninn eftir lyfjum og mat Þann 24. janúar 2023 fór Clancy með Coru til læknis, lék við börnin í snjónum og föndraði með þeim heima. Patrick hefur sagt að hún hafi virst í betra skapi en undanfarnar vikur. Um kvöldið bað hún hann að sækja lyf fyrir Coru og kvöldmat fyrir fjölskylduna. Meðan hann var í burtu fór Clancy með börnin niður í kjallara og kyrkti þau hvert á fætur öðru með æfingateygjum. Síðan reyndi hún að svipta sig lífi og stökk út um glugga á annarri hæð hússins. William Sullivan dómari hafnaði kröfu um að ógilda réttarhöldin eftir að sálfræðingurinn Kirk Heilbrun ræddi kaþólska trú Lindsay Clancy. Clancy hafði sagt honum að hún teldi sig og börnin myndu sameinast á himnum eftir dauðann. Þegar Heilbrun skýrði mat sitt á frásögn hennar vísaði hann til þess að sjálfsvíg teldist dauðasynd samkvæmt kaþólskri trú. Verjendur sögðu trúarkenningar málinu óviðkomandi og til þess fallnar að hafa áhrif á kviðdóminn. Sullivan fyrirskipaði kviðdómendum að líta fram hjá ummælunum. Patrick kom heim skömmu eftir klukkan sex og fann Lindsay særða fyrir utan húsið. Hún sagði honum að börnin væru í kjallaranum. Cora og Dawson létust þetta kvöld. Callan var fluttur á sjúkrahús en lést nokkrum dögum síðar. Clancy lifði fallið af en er lömuð fyrir neðan mitti. AP hefur birt frásögn Patricks af kvöldinu og neyðarsímtalinu sem kviðdómurinn hlustaði á. Deilt um geðrof og skipulagningu Saksóknarar segja Clancy hafa skipulagt verknaðinn. Þeir benda á að hún hafi sent Patrick bæði í apótek og á veitingastað og kannað akstursleiðina í síma sínum. Læknar sem sinntu henni fyrir dauða barnanna sögðust ekki hafa séð merki um geðrof. Réttargeðlæknirinn Avram Mack taldi hana hafa verið alvarlega þunglynda en samt getað greint rétt frá röngu og stjórnað gerðum sínum. Sálfræðingurinn Kirk Heilbrun taldi hana vera með geðhvörf af gerð tvö en hafnaði því að hún hefði verið í bráðu geðrofi. Hann taldi hana hafa ætlað að svipta sig lífi og sannfært sig um að börnin myndu þjást ef hún skildi þau eftir. AP greindi frá framburði sérfræðinga ákæruvaldsins. Stuðningskonur Lindsay Clancy fylgjast með réttarhöldunum í Plymouth. Hundruð kvenna hafa fylkt sér að baki henni og sagt mál hennar varpa ljósi á skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir konur eftir barnsburð. Verjendur segja Clancy hafa fengið geðrof eftir fæðingu og að lyfjameðferðin hafi gert ástand hennar verra. Geðrof eftir fæðingu er sjaldgæft ástand sem getur valdið ofskynjunum, ranghugmyndum og miklum ruglingi. Talið er að ein til tvær konur af hverjum þúsund sem fæða barn fái slíkt geðrof. Langflestar þeirra skaða ekki börn sín, að því er fram kemur í umfjöllun AP um ástandið. Sérfræðingar verjenda töldu Clancy hafa verið í geðrofi og ófæra um að skilja að verknaðurinn væri rangur. Hún sagði þeim að karlmannsrödd hefði skipað henni að drepa börnin svo hún gæti síðan svipt sig lífi. Réttargeðlæknirinn Phillip Resnick taldi hana jafnframt hafa verið haldna þeirri ranghugmynd að börnin yrðu yfirgefin ef hún dæi. Hundruð sýndu Clancy stuðning Um þrjú hundruð manns, langflestir konur, komu saman við dómshúsið í Plymouth í síðustu viku. Margar klæddust bleiku og báru skilaboð um að Clancy hefði þurft hjálp. Nokkrar kvennanna sögðu frá eigin reynslu af geðrænum veikindum eftir barnsburð og sögðu konur ekki alltaf teknar alvarlega þegar þær leituðu aðstoðar. Stuðningskonur Lindsay Clancy klæddust bleiku sem sýnilegu merki um samstöðu við hana. Um þrjú hundruð manns komu saman við dómshúsið í Plymouth og vildu jafnframt vekja athygli á geðrænum veikindum eftir barnsburð og skorti á úrræðum fyrir konur í alvarlegum vanda. Stuðningurinn hefur einnig verið gagnrýndur. Þar er bent á að Clancy hafi sjálf kyrkt börnin og að athyglin beinist í of miklum mæli að henni en of litlum að Coru, Dawson og Callan. Patrick hefur hins vegar sagst fyrirgefa fyrrverandi eiginkonu sinni og líta svo á að hún hafi verið alvarlega veik. Kviðdómurinn tekur næst við Réttarhöldin hófust 27. júlí og eru nú á fimmtu viku. Þriðjudagurinn 25. ágúst var tuttugasti dagur vitnaleiðslunnar. Verjendur hafa lokið sinni sönnunarfærslu en saksóknarar eiga eftir að ljúka við síðustu vitnin. Þegar því lýkur flytja báðir aðilar lokaræður og málið verður lagt fyrir kviðdóminn. Samkvæmt lögum Massachusetts þarf ákæruvaldið að sanna að Clancy hafi getað skilið að verknaðurinn væri rangur og stjórnað gerðum sínum þrátt fyrir veikindin. Verði Clancy fundin sek á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún talin hafa verið ósakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins. Lokaræður eru væntanlegar síðar í vikunni. Engin dagsetning liggur fyrir um niðurstöðu kviðdómsins.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira