Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Árni Sæberg skrifar 28. ágúst 2026 11:44 Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyja. Vísir/Bjarni Enn liggur ekki fyrir hvort hægt verði að nota nýja vatnslögn til Eyja, sem skemmdist við útlagningu aðra helgina í ágúst. Heildarkostnaður við lögnina er áætlaður 3,1 milljarður króna.
Greint var frá því þann 11. ágúst að tjón hefði orðið á NSL-4 almannavarnalögn til Vestmannaeyja þegar unnið var að útlagningu hennar. Lögninni er ætlað að tryggja öruggari vatnsöflun fyrir íbúa Vestmannaeyja eftir að skemmdir urðu á neysluvatnslögn til Eyja árið 2013. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, sagði í samtali við fréttastofu þann 14. ágúst að koma myndi í ljós eftir hálfan mánuð hvort hægt yrði að nota lögnina. Nú er hálfur mánuður liðinn en Íris segir í stuttu samtali við Vísi að ekkert nýtt sé að frétta í þeim efnum. Fátt um svör hjá ráðuneytunum Fjallað var um lögnina á fundi bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar á mánudag. Í fundargerð kemur fram að kostnaður vegna almannavarnalagnar NSL-4 nemi um 1,75 milljörðum króna og að óframkomnir reikningar og áætlaður kostnaður til verkloka nemi um 1,36 milljörðum. Þá hafi ríkissjóður lagt verkefninu til samtals 800 milljónir króna eins og staðan er í dag en ekki sé enn komin niðurstaða í viðræður við innviða-, dómsmála- og fjármálaráðuneytið um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4 þrátt fyrir ítrekun þar um eftir síðasta fund ráðsins. Heiðar Ásberg Atlason lögmaður hafi á fundinum farið yfir ferli varðandi beiðni Vestmannaeyjabæjar til fjármálaráðuneytis um undanþágu frá opinberum gjöldum vegna kaupa og innflutnings á almannavarnalögninni. Beiðnin hafi verið send til ráðuneytisins fyrir rúmu ári og hafi verið ítrekuð nokkrum sinnum en engin svör hafi borist. Nú liggi fyrir að Vestmannaeyjabær þurfi að greiða tolla vegna innflutnings almannavarnalagnarinnar ef ekki verður veitt umbeðin undanþága sem fyrst. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir Þá segir að Heiðar Ásberg hafi farið yfir stöðu máls vegna tjóns sem varð á almannavarnalögninni. Fram hafi komið að tjónið hefði verið tilkynnt vátryggjendum án tafar og að aðgerðir Vestmannaeyjabæjar hefðu verið unnar í samráði við þá, með það að markmiði að takmarka tjón og halda tryggingavernd óskertri. Umfang tjónsins liggi ekki endanlega fyrir og muni skýrast eftir prófanir, frekari skoðun lagnarinnar og gagnaöflun, meðal annars frá framleiðanda. Næstu skref felist í áframhaldandi gagnaöflun, samskiptum við vátryggjendur og rýni á væntanlega skýrslu Subsea7, fyrirtækisins sem vann að útlagningu lagnarinnar. Vatnshópurinn, sem í sitji allir oddvitar framboða, hafi fundað þrisvar sinnum vegna málsins með lögfræðingum og verkefnastjórum.Innviðaráðuneytið hafi verið upplýst um stöðuna, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og formaður almannavarnanefndar Vestmannaeyjabæjar hafi verið upplýst reglulega um stöðu mála.
Vestmannaeyjar Skemmd neysluvatnslögn í Eyjum Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira