Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2026 21:31 Hlynur Sævar Jónsson kom Fylki aftur yfir gegn Gróttu undir lok leiks í Árbænum. vísir/guðmundur Næstsíðasta umferð Lengjudeildar karla hófst í kvöld með tveimur leikjum. Þróttur vann stórsigur á botnliði Ægis, 7-2, á meðan Fylkir lagði Gróttu að velli, 3-1. Þróttur og Fylkir eru bæði örugg með sæti í umspili um sæti í Bestu deildinni og geta enn unnið Lengjudeildina.
Kári Sigfússon kom Fylkismönnum yfir á 25. mínútu en þegar átta mínútur voru til leiksloka jafnaði Björgvin Brimi Andrésson metin fyrir Seltirninga. Hlynur Sævar Jónsson kom Fylki aftur yfir á 86. mínútu og á lokamínútunni gulltryggði hinn fimmtán ára Magnús Daði Ottesen sigur heimamanna. Fylkir er áfram í 3. sæti deildarinnar með fjörutíu stig, jafn mörg og Þróttur. Grótta, sem hefur tapað þremur leikjum í röð, er í 6. sætinu. Aron Snær Ingason og félagar í Þrótti geta enn unnið Lengjudeildina en þurfa að treysta á að Afturelding misstígi sig.vísir/ernir Aron Snær Ingason skoraði þrennu fyrir Þróttara þegar Ægismenn komu í heimsókn í Laugardalinn. Þróttur komst í 2-0 með mörkum Björns Darra Oddgeirssonar og Arons Snæs en Ægir jafnaði eftir mörk frá Stefan Dabetic og Bjarka Rúnars Jónínusonar. Aron Snær kom Þrótti aftur yfir eftir rúman hálftíma og heimamenn leiddu, 3-2, í hálfleik. Í seinni hálfleik skoraði Aron Snær þriðja mark sitt, Magnús Þórðarson gerði tvö mörk og Jakob Ocares Kristjánsson komst einnig á blað. Þróttur er tveimur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem fær Vestra í heimsókn á morgun. Ægir er á botni deildarinnar með einungis átta stig. Upplýsingar um markaskorara og gang mála í leikjunum eru fengnar frá Fótbolta.net.
Lengjudeild karla Fylkir Grótta Þróttur Reykjavík Ægir Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira