„Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. ágúst 2026 19:21 Ian Jeffs fór ekki í grafgötur með það hversu illa honum fannst Breiðablik spila í fyrri hálfleik. vísir/anton Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var verulega ósáttur með frammistöðu Íslandsmeistaranna í fyrri hálfleik í tapinu fyrir ÍBV, 1-2, á Eikarvellinum í Kópavogi í dag. „
Við bara mættum ekki til leiks í fyrri hálfleik. Við vorum bara ekki með. Það var bara eitt lið á vellinum og það var ÍBV. Þær skoruðu eitt mark og það hefði kannski verið sanngjarnt að þær hefðu verið tvö til þrjú núll yfir í hálfleik. Við áttum eitt dauðafæri sem við klúðruðum með opið markið en fyrir utan það að við vorum ekki að gera mikið í fyrri hálfleik,“ sagði Jeffs við Vísi eftir leik. Jeffs gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og Blikar tóku sig taki eftir hlé. „Við fórum aðeins yfir þetta í hálfleik. Þetta var bara óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik, fannst mér. Við vorum bara ekki mætt til leiks. Við vorum ekki að pressa, við vorum úti um allt varnarlega og sóknarlega. Við vorum bara ekki með. En við fórum bara yfir þetta í hálfleik og ég er ánægður með viðbrögðin í seinni hálfleik. Mér fannst við mæta til leiks þá og þá sýndum við bara svona aðeins meiri takta, þrátt fyrir að þetta væri ekki okkar besti leikur,“ sagði Jeffs. „Við vorum að skapa fullt af færum og möguleikum til að koma boltanum í teig en svo fengum við bara mark í andlitið. Við fengum tvö, þrjú góð færi sem við náðum ekki að skora úr og fengum svo bara mark í andlitið.“ En komu Eyjakonur Blikum í opna skjöldu í dag? „Þær komu ekki á óvart. Þær gera bara svona einfalda hluti bara mjög vel og þetta er bara lið sem sýnir virkilegan karakter, baráttu og vilja. Við vissum alveg að þær myndu mæta svona til leiks og við þurftum að „matcha“ það en við gerðum það ekki í fyrri hálfleiknum. Við vorum bara „off“, líkamstjáning á leikmönnunum og bara, þetta var bara eitthvað sem mér fannst „off“ í dag frá fyrstu mínútu,“ svaraði Jeffs. „En ég get sagt að ég er ánægður með seinni hálfleikinn en fyrri hálfleikurinn var bara alls ekki nógu góður af okkar hálfu.“
Besta deild kvenna Breiðablik ÍBV Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Leik lokið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira