Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Kjartan Kjartansson skrifar 1. september 2026 14:50 Áfram Ísland eyddi helmingi meira fé í auglýsingar á Facebook og Meta en Já til að sjá. vísir Tvær helstu fylkingarnar sem tóku þátt í kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina sendu samanlagt á sjöundu milljón króna úr landi til bandaríska samfélagsmiðlarisans Meta. Aragrúi samtaka og einstaklinga eyddi lægri fjárhæðum í auglýsingar á miðlum Meta.
Umsvifamest í auglýsingakaupum á miðlum Meta var Áfram Ísland, hreyfing sem barðist gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún eyddi rúmum 3,9 milljónum króna í 570 auglýsingar frá 1. júní til 29. ágúst samkvæmt gögnum Meta. Það var helmingi meira en SJÁ, hreyfing fylgjenda viðræðna, eyddi í 821 auglýsingu sem var skráð hjá Meta síðustu þrjá mánuðina fyrir atkvæðagreiðsluna. SJÁ eyddi alls rúmum 2,6 milljónum króna í auglýsingarnar. Síðustu vikuna fyrir kjördag eyddi Áfram Ísland tæpum 2,3 milljónum króna í auglýsingar á Facebook og Instagram. Á sama tíma varði SJÁ 1,3 milljónum í auglýsingar á samfélagsmiðlunum. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, og Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, voru báðir áberandi á vegum Áfram Íslands.Vísir/Sigurjón Á eftir stóru hreyfingunum tveimur voru Xnei, þverpólitísk samtök ungs fólks gegn ESB, umsvifamest í auglýsingum á miðlum Meta fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þau eyddu tæpum 592 þúsund krónum í auglýsingar, þar af rúmum 413 þúsundum frá 23. ágúst til kjördags 29. ágúst. Ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Miðflokks, Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins stóðu að Xnei. Tveir stjórnarflokkanna létu til sín taka Viðreisn, flokkur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, eyddi 336 þúsund krónum í að auglýsa á samfélagsmiðlum Meta fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Stór hluti þeirra auglýsinga tengdist þjóðaratkvæðagreiðslunni en þó ekki allar. Þá eyddi Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, rúmum 156 þúsund krónum í að auglýsa hlustunarfundi og hvetja fólk til þess að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta mánuðinn. Kristrún Frostadóttir greiddi Meta meðal annars til þess að auglýsa viðburð sem hún stóð fyrir í síðustu viku, rétt fyrir kjördag.Vísir/Bjarni Einarsson Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eyddi rúmum 73 þúsund krónum í að dreifa færslum þar sem hann talaði fyrir aðildarviðræðum í ágúst. Um fimmtíu þúsund krónur af því fé sem Samfylkingin varði í auglýsingar á Meta frá því í júní tengdust þjóðaratkvæðagreiðslunni á einhvern hátt. „Kíktu í pakkann“ sýndu ekki í pakkann Sá eða þeir sem stóðu fyrir síðunni „Kíktu í pakkann“ greiddu tæpar 155 þúsund krónur fyrir auglýsingar á Meta í kosningabaráttunni. Samnefnd vefsíða hélt úti áróðri gegn Evrópusambandsaðild Íslands. Hvergi kemur fram hver stóð fyrir „Kíktu í pakkann“ en Geir Zoëga, stjórnarmaður úr Sambandi ungra sjálfstæðismanna var andlit hennar. Engin þeirra auglýsinga sem aðilarnir sem stóðu að síðunni keyptu var með upplýsingum um hver greiddi fyrir þær. Meta virðist hafa fjarlægt þær af þessum sökum samkvæmt upplýsingum á vefsíðu fyrirtækisins. Aðstandendur síðunnar reyndu einnig að kaupa auglýsingu fyrir hana á Vísi en hún var fjarlægð þar sem enginn var skráður fyrir henni. Stjórnarmaður í SUS var andlit Kíktu í pakkann sem enginn tók annars ábyrgð á opinberlega.Kíktu í pakkann Heimssýn, samtök andstæðinga Evrópusambandsaðildar Íslands, eyddu rúmlega 220 þúsund krónum í auglýsingar á Facebook og Instagram. Fæstum auglýsingum þeirra fylgdu upplýsingar um hver greiddi fyrir þær. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, sem áttu mikla hagsmuni undir í þjóðaratkvæðagreiðslunni, eyddu tæpum 110 þúsund krónum í samfélagsmiðlaauglýsingarnar síðasta mánuðinn fyrir kosningar en þær tengdust allar mögulegri ESB- aðild Íslands. Upplýsingasíður komu sér á framfæri Vefsíður með því sem áttu að vera hlutlægar upplýsingar um ESB og aðildarviðræður skutu upp kollinum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar en þær höfðu þó tengsl við andstæðar fylkingar. Já-megin eyddi Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir, rúmum 75 þúsund krónum í að auglýsa Ísland og Evrópu, vefsíðu með svörum gervigreindar við spurningum um Evrópusambandið. Hjörtur J. Guðmundsson hefur meðal annars skrifað ókjör pistla um Evrópusambandið á Vísi undanfarin ár.Vísir Evrópumálin, sambærileg vefsíða nei-sinna, varði rúmum 32 þúsund krónum í auglýsingar hjá Meta. Vefsíðunni er lýst sem samstarfi Stjórnmálanna.is, vefsíðu sem Hjörtur J. Guðmundsson, ríkisstarfsmaður, fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu og afkastamikill pistlahöfundur, rekur og Moria Solutions, verkefnis Daða Freys Ólafssonar, nei-sinna. Hjörtur segir í samtali við Vísi að Moria Solutions hafi greitt fyrir auglýsingarnar hjá Meta. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfélagsmiðlar Meta Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira