„Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 1. september 2026 12:32 Í nýlegu tölublaði Talnabrunns frá embætti landlæknis voru tekin saman gögn um þróun andlegrar heilsu og líðanar fullorðinna á Íslandi síðastliðinn áratug, frá 2016 til 2025. Þar er meðal annars horft til andlegrar heilsu, streitu, svefns, einmanaleika, hamingju og velsældar og niðurstöður greindar eftir aldri og kyni. Það má sjá ýmislegt áhugavert í þessum gögnum, en eitt stendur sérstaklega upp úr: yngri aldurshópar koma almennt verr út á mörgum mælikvörðum líðanar en þeir eldri. Þetta er jafnframt eitt af því sem dregið er fram sérstaklega í helstu niðurstöðum skýrslunnar. Yngri aldurshópar greina almennt frá lakari andlegri heilsu, meiri streitu, meiri einmanaleika og minni hamingju og velsæld en þeir eldri. Þegar rýnt er í tölurnar verður myndin enn skýrari. Meðal 18–24 ára mátu 54% andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2025, samanborið við 64% árið 2016. Þetta er mesta lækkun sem varð meðal aldurshópanna á tímabilinu. Það má þó sjá að nýjasta mælingin sýnir jákvæða þróun: árið 2025 jókst hlutfall þeirra sem mátu andlega heilsu sína góða í öllum aldurshópum og aukningin var mest meðal 18–24 ára Einmanaleiki er jafnframt sérstaklega áberandi meðal yngstu aldurshópanna. Árið 2025 sögðust um 20% 18–24 ára oft eða mjög oft finna fyrir einmanaleika. Hlutfallið er svipað meðal 25–34 ára og hafði hjá þeim hópi þrefaldast frá 6% árið 2016 í 18% árið 2025. Hér má þó einnig sjá jákvæða þróun hjá yngsta hópnum: einmanaleiki meðal 18–24 ára náði hámarki árið 2020, þegar eitt af hverjum fjórum fann oft eða mjög oft fyrir einmanaleika, en hefur farið lækkandi síðan. Hamingja hefur sömuleiðis frá upphafi vöktunar mælst minnst meðal 18–24 ára og mest meðal 65 ára og eldri, og munurinn hefur gjarnan verið um 15–20 prósentustig. Sama mynstur birtist þegar velsæld er skoðuð. Frá því að reglulegar mælingar á velsæld hófust árið 2020 hefur hlutfall þeirra sem mælast með mikla velsæld verið lægst meðal 18–24 ára, almennt um eða undir 10%, en í kringum fjórðung meðal elsta aldurshópsins. Það er jákvætt að sjá að á sumum mælikvörðum hefur þróunin síðustu ár verið til betri vegar. Hins vegar breytir það þó ekki þeirri heildarmynd að yngri aldurshópar hafa ítrekað komið verr út en þeir eldri á mikilvægum þáttum líðanar. Það vekur upp spurninguna: hvað getum við gert til að styðja betur við unga fólkið okkar og getum við byrjað fyrr? Þetta er ekki nýtt vandamál Það er áhugavert og um leið áhyggjuefni að þetta eru ekki eingöngu nýjar tölur eða skyndileg breyting síðustu ára. Yngri aldurshópar hafa frá upphafi margra þessara mælinga almennt komið verr út en þeir eldri. Einmanaleiki hefur mælst mestur meðal 18–24 ára allt frá því vöktun hófst árið 2016. Hamingja hefur sömuleiðis frá upphafi mælst minnst meðal þessa aldurshóps. Og frá því að velsæld var fyrst mæld reglulega árið 2020 hefur hún einnig verið minnst meðal þeirra yngstu. Við erum því ekki aðeins að horfa á tímabundna niðursveiflu. Við erum að horfa á mynstur sem hefur verið til staðar um nokkurt skeið. Það er því full ástæða til að beina sjónum að lausnum og spyrja: Hvað getum við gert til að styðja betur við unga fólkið okkar? Og ef við viljum vinna fyrirbyggjandi er ekki síður mikilvægt að spyrja: Getum við byrjað fyrr, áður en unga fólkið kemur inn í þann aldurshóp sem við sjáum hér? Þar verða unglingsárin og skólaumhverfið sérstaklega áhugaverður vettvangur. Hvað ef ein af leiðunum er að hjálpa ungmennum að finna að þau tilheyri? World Happiness Report 2026 varpar áhugaverðu ljósi á þessa spurningu. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um samfélagsmiðlanotkun og lífsánægju ungmenna. Þegar alþjóðleg PISA-gögn frá 47 löndum voru skoðuð kom fram sérstaklega áhugaverð niðurstaða. Tengslin á milli þess að upplifa að maður tilheyri í skólanum við lífsánægju voru mun sterkari en tengsl samfélagsmiðlanotkunar við lífsánægju. Þegar borin voru saman ungmenni með litla og mikla upplifun af því að tilheyra í skólanum var munurinn á lífsánægju þeirra um sexfalt meiri en sá munur sem tengdist mikilli eða lítilli samfélagsmiðlanotkun. Þetta átti við um heildarúrtak frá 47 löndum. Mikilvægt er að hafa í huga að þetta eru tengsl og sýna ekki ein og sér orsakasamband. En niðurstaðan vekur engu að síður mikilvæga spurningu. Við tölum mikið um samfélagsmiðla þegar við ræðum líðan ungs fólks. En tölum við nóg um hvort unga fólkinu okkar finnist það tilheyra? Það ,,að tilheyra” má í einföldu máli lýsa sem upplifuninni: „Ég á heima hér.“ Nátengt hugtak er mattering, upplifunin að vera mikilvægur öðrum, að það sé tekið eftir manni og að nærvera manns og framlag hafi þýðingu: „Það skiptir máli að ég sé hér.“ Félagslegi heimurinn fær aukið vægi á unglingsárunum Ef við horfum til þess hvar hægt er að vinna fyrirbyggjandi verður þetta sérstaklega áhugavert í samhengi við unglingsárin. Á unglingsárunum verða miklar breytingar á heilakerfum sem taka þátt í félagslegri umbun, mati annarra, sjálfsmynd og því að skilja hugsanir og viðbrögð annarra. Þar koma meðal annars við sögu medial prefrontal cortex (mPFC), ventral striatum og svæði í svokölluðu social brain eða mentalizing network. Það væri þó of mikil einföldun að segja að eitt ákveðið „belonging-svæði“ í heilanum þroskist á unglingsárunum. Frekar er um að ræða breytingar í samverkandi heilakerfum sem taka þátt í úrvinnslu félagslegra upplýsinga, félagslegri umbun og mati annarra. Jafningjar, samþykki og höfnun geta jafnframt fengið aukið vægi á þessu þroskaskeiði. Þessi aukna næmni fyrir félagslegu umhverfi þarf heldur ekki aðeins að fela í sér áhættu. Hún getur líka skapað tækifæri. Ef félagslegt umhverfi fær aukið vægi á þessum árum, þá skiptir máli hvers konar félagslegt umhverfi við búum til í kringum unga fólkið okkar. Skólinn gefur okkur einstakt tækifæri Þarna felst því mikilvægt tækifæri til forvarna: að skoða hvort og hvernig við getum markvisst ýtt undir tilfinningu ungmenna um að þau tilheyri í skólanum. Einn stærsti kosturinn við að vinna með það að tilheyra innan skóla er að þar höfum við tækifæri til að ná til mjög stórs hóps ungmenna, ekki aðeins þeirra sem þegar eru komin með vanda eða hafa aðgang að sértækri þjónustu. Skólinn er jafnframt einn mikilvægasti félagslegi vettvangur unglingsáranna. Þar verja ungmenni stórum hluta dagsins, þar myndast vináttutengsl og hópar og þar fá þau stöðugt upplýsingar beint og óbeint um hvort þau séu samþykkt, hvort þau eigi heima og hvort framlag þeirra skipti máli. Góðu fréttirnar eru þær að til eru rannsóknarstuddar leiðir til að vinna markvisst að því að efla tilfinningu ungmenna um að tilheyra í skóla. Á undanförnum árum hafa verið þróaðar og rannsakaðar sálfræðilegar aðferðir sem miða meðal annars að því að styrkja upplifun nemenda af því að tilheyra, draga úr óvissu um hvort þeir tilheyri og styðja við félagslega og námslega aðlögun þeirra. Athyglisvert er að sumar þessara aðferða eru tiltölulega einfaldar og krefjast ekki umfangsmikilla inngripa. Rannsóknir hafa sýnt að slíkar aðferðir geta, þegar þær eru notaðar við réttar aðstæður, haft jákvæð áhrif á upplifun nemenda af því að tilheyra, líðan og félagslega aðlögun og í sumum rannsóknum einnig námsárangur. Áhrifin eru þó ekki sjálfgefin heldur ráðast meðal annars af aðstæðum, hópnum og því hvernig aðferðunum er beitt. Það er mikilvægt, því það ,,að tilheyra” verður ekki skapað með því einu að segja ungmennum að þau tilheyri. Upplifunin þarf líka að eiga sér stoð í raunverulegu félagslegu umhverfi þeirra. Rannsóknarstuddar aðferðir geta því verið einn hluti af stærra verkefni: að skapa skólaumhverfi þar sem ungmenni fá ítrekað þau skilaboð, bæði í orðum og athöfnum, að þau séu hluti af samfélaginu. Þetta eru sérstaklega spennandi möguleikar í forvarnarstarfi. Í stað þess að bíða þar til vanlíðan er orðin mikil getum við spurt fyrr: Hvernig getum við skapað aðstæður þar sem fleiri ungmenni upplifa: „Ég á heima hér“? Og jafnvel: „Það skiptir máli að ég sé hér.“ Tækifærið til forvarna Hér liggur stórt tækifæri til að skoða hvað við getum gert fyrir unga fólkið okkar. Ekki aðeins hvað við getum tekið frá þeim, bannað eða takmarkað heldur hvað við getum byggt upp í kringum þau. Hvernig getum við skapað skóla þar sem nemandi finnur: ,,Ég á heima hér.” Hvernig getum við skapað tækifæri fyrir hvert ungmenni til að leggja eitthvað af mörkum og upplifa:,,Það skiptir máli að ég sé hér.” Unglingsárin fela í sér miklar líkamlegar, sálfræðilegar og félagslegar breytingar. Það er nógu krefjandi verkefni eitt og sér að finna út hver maður er og hvar maður á heima.Gögnin sýna að yngsti aldurshópur fullorðinna hefur staðið verr en eldri aldurshópar á mörgum mælikvörðum líðanar árum saman. Við höfum því góða ástæðu til að horfa til forvarna og spyrja hvað við getum gert fyrr. Kannski er ein mikilvægasta spurningin sem við getum spurt ekki aðeins: „Hvað er að unga fólkinu okkar?“ Heldur: „Hvað getum við gert öðruvísi í umhverfinu í kringum það?“ Og ein leið til að byrja gæti verið: Að hvert ungmenni finni: ,,Ég á heima hér og það skiptir máli að ég sé hér.” Höfundur er sálfræðingur og doktor í lífeðlislegri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun