Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Sif Sigmarsdóttir skrifar 3. september 2026 07:03 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. VÍSIR Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda.
Ein er sú hugmynd sem kann að vera þeim hópi haldreipi í vonbrigðum sínum: Hamingju er hvort eð er ekki hægt að kaupa fyrir peninga. Svo getur þó verið að þeir sem njóta góðs af rentunni séu hreint ekki jafnóhamingjusamir og við með tómu vasana vonuðum. Hljóp út öskrandi Júlímorgun árið 2013 keypti Emma Wildin, þrítug húsmóðir á Englandi, happaþrennu. „Líf mitt snerist um móðurhlutverkið,“ sagði hún í samtali við dagblaðið Guardian. „Ég gerði mér dagamun með skafmiðunum.“ Emma leyfði sér nokkra skafmiða í viku. Einu sinni hafði hún unnið 100 pund. Þennan dag fór Emma með skafmiðann út í garð. „Ég vildi fá nokkrar mínútur út af fyrir mig.“ Andartaki síðar hljóp hún öskrandi aftur inn. „Ég vann milljón!“ Ungir synir hennar horfðu á hana skilningssljóir. Hún hringdi í manninn sinn. Hann taldi líklegast að um mistök væri að ræða. Svo var þó ekki. Hjónin ákváðu að leyfa sér að eyða hundrað þúsund pundum í vitleysu. Þau fóru í frí í Disney World og Emma keypti sér Range Rover. Það var þó ekki bíllinn sem kveikti með henni hamingjuna. Milljón pund gagnlítil meðferð Sú hugmynd var lengi viðtekin að hamingja fengist ekki fyrir peninga. Árið 1974 sýndi bandaríski hagfræðingurinn Richard Easterlin hins vegar fram á að fullyrðingin ætti ekki við rök að styðjast; hinir ríku voru sannarlega hamingjusamari en þeir efnaminni. Rannsóknir sýna að peningar kaupa hamingju.GETTY Trúin á sambandsleysi auðs og hamingju var þó ekki dauð úr öllum æðum. Árið 2010 skaut rótum sú hugmynd að þótt peningar gætu keypt hamingju væri kaupgetan að þessu leyti takmörkuð. Rannsókn Nóbelsverðlaunahafanna Daniel Kahneman og Angus Deaton sýndi að dagleg vellíðan ykist með tekjum, en aðeins upp að ákveðnu marki: Þakið var sagt 75.000 dollarar. Aðdáendum einfaldleikans til ama reyndist málið þó ekki svo klippt og skorið. Árið 2021 birti bandaríski sálfræðingurinn Matthew Killingsworth niðurstöður ýtarlegrar rannsóknar sem stangaðist á við fullyrðingar Nóbelsverðlaunahafanna. Hamingja jókst með auknum tekjum og ekkert augljóst þak var til staðar. Í stað þess að fara í hár saman tóku vísindamennirnir saman höndum um að komast að því hvor rannsóknin var rétt. Niðurstaðan var: báðar. Í flestum tilfellum hélt hamingja áfram að aukast eftir því sem tekjur hækkuðu. Meðal hinna óhamingjusömustu var hins vegar þak á hamingjuaukningunni. Var ástæðan sú að væru upptök óhamingju erfiðleikar við að greiða af húsnæðisláninu gerðu peningar kraftaverk. Stafaði óhamingja af hjónabandserfiðleikum var milljón pund hins vegar gagnlítil meðferð. Hún þoldi það ekki Emma Wildin keypti fleira en Range Rover fyrir skafmiðavinninginn. Áður en Emma eignaðist milljón hafði hún þurft að biðja eiginmann sinn um peninga til neyslu. Hún þoldi það ekki. Fyrir afganginn af milljóninni keypti hún tvær fasteignir sem hún leigið út. Leigutekjurnar tryggðu henni fjárhagslegt sjálfstæði og sjálfsvirðingu. Hamingja er ekki eins og handtaska Rannsóknum ber saman um að hamingja fáist fyrir peninga. Vísindin gera þó greinarmun á hamingju. Er hamingjan eins og kaffibollinn; ódýrari í evruríkjunum?VÍSIR Annars vegar er hamingja mæld í daglegri vellíðan: Ertu í góðu skapi? Stressaður? Kvíðinn? Hins vegar almennri lífsánægju:Horfir þú á líf þitt, hversu vel finnst þér það ganga? Peningar eru vel til þess fallnir að auka síðari tegundina. Því peningar kaupa okkur ekki frelsi undan einsemd, sorg eða leiðindum. Þeir kaupa okkur ekki hamingju eins og nýja handtösku. Þeir kaupa frelsi undan skelfingu þegar bíllinn bilar. Þeir kaupa frelsi til að hætta í vinnu sem okkur leiðist og leita að nýrri. Þeir kaupa frelsi til að panta pizzu þegar við erum of þreytt til að elda og svara játandi þegar vinkona stingur upp á að kíkja út í kokteil. Peningar kaupa okkur aukna stjórn yfir eigin lífi og vörn gegn ýmsu sem getur farið úrskeiðis. Í því felst hamingja. Draumur á enda Tæplega helmingur þjóðarinnar er nú óhamingjusamur yfir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald á aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu hafi bundið enda á drauminn um upptöku evrunnar. En er ekki bara hægt að kaupa hamingju fyrir íslensku krónurnar okkar? Rannsóknir segja já. Vandinn er hins vegar sá að við núverandi vaxtaskilyrði eru krónurnar þínar sennilega að kaupa einhverjum öðrum en þér hamingju.
Samhengið með Sif Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Heilsa Fjárhættuspil Tengdar fréttir Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02 Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02 Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01 Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00 Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00 Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02 Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00 Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02 Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01 Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Sjá meira
Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02
Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02