Handbolti

Læri­sveinar Guð­jóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik

Andri Broddason skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson vann sitt gamla félag í annarri umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.
Guðjón Valur Sigurðsson vann sitt gamla félag í annarri umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Getty/Ronny Hartmann

Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og átti nokkrir Íslendingar leik í kvöld. Rhein-Neckar Löwen er enn stigalaust, Gummersbach náði að koma til baka eftir tap gegn Magdeburg í fyrstu umferðinni og Flensburg situr á toppi deildarinnar.

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach unnu Hauk Þrastarson og félaga í Rhein-Neckar Löwen 26-31. Haukur átti ekki góðan leik og hefur nú Rhein-Neckar Löwen tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni.

Haukur Þrastarson skoraði aðeins eitt mark í fimm skotum en gaf þó átta stoðsendingar. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach en það var eina skotið hans í leiknum.

Rhein Neckar Löwen er ekki að eiga draumabyrjun í þýsku úrvalsdeildinni en vonandi mun gengi þeirra batna. Gummersbach náði að koma sér aftur á beinu brautina eftir að hafa tapað gegn ríkjandi meisturum í Magdeburg.

Stórsigur Melsungen

Melsungen einfaldlega slátraði Göppingen í leik kvöldsins sem endaði 31-18. Melsungen var aðeins með fjögurra marka forystu í hálfleik en liðið hrökk í næsta gír í seinni hálfleik.

Snemma í fyrri hálfleiknum skoraði Melsungen fimm mörk í röð og kom forystu liðsins í níu mörk. Reynir Þór Stefánsson átti tvö af þessum mörkum en eftir þessa markaseríu sá Göppingen aldrei aftur til sólar.

Reynir Þór skoraði samtals þrjú mörk í leiknum og komu þau öll í seinni hálfleik. Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen sem þarf að sætta sig við stórt tap.

Arnar Freyr á toppi deildarinnar

Flensburg vann BHC í þýsku úrvalsdeildinni 34-29 þar sem Arnar Freyr Arnarsson spilaði fyrir Flensburg. Liðið er sem stendur á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar en nokkur lið eiga eftir að spila í annarri umferð deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×