Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2026 13:48 Fjöldi bílastæða við nýbyggingar kann framvegis að ráðast af mati á hverju verkefni í stað bindandi hámarks, verði breytingarnar staðfestar í borgarráði. Arnar Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur samþykkti í gær að fella niður bindandi hámark á fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar.
Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar. Málinu hefur verið vísað til borgarráðs. Í núgildandi reglum eru bæði viðmið og hámark fyrir fjölda bílastæða. Heimilt er að rökstyðja fjölgun eða fækkun frá viðmiðinu en aldrei má fara yfir hámarkið. Samkvæmt breytingunum verða viðmiðin áfram höfð til hliðsjónar en heimilt að ákveða fleiri eða færri stæði eftir staðsetningu, landnotkun og þörfum hverrar uppbyggingar. Frávik þarf að rökstyðja og samgöngumat verður áfram notað þar sem þess er þörf. Hámarksákvæði sem þegar eru bindandi í samþykktu deiliskipulagi halda gildi sínu. Viðmiðum verður einnig breytt fyrir sumar íbúðir. Á svæði eitt verður gert ráð fyrir hálfu stæði fyrir eins herbergis íbúð, 0,75 stæði fyrir tveggja herbergja íbúð og einu stæði fyrir stærri íbúðir. Viðmiðin fyrir námsmannaíbúðir verða frá 0,25 upp í eitt stæði eftir stærð. Segja afslátt og afnám vinna saman Meirihlutinn segir afnám hámarksins ekki leiða sjálfkrafa til fjölgunar stæða. Hvert stæði neðanjarðar kosti yfir fimm milljónir króna og sá kostnaður veiti byggingaraðilum aðhald. Ráðgjafa- og verkfræðistofan Efla bendir þó á í minnisblaði sínu að mikið framboð bílastæða geti aukið bílaeign og akstur, hækkað húsnæðiskostnað og dregið úr skilvirkri landnýtingu. Fyrirtækið lagði til að hámarkið yrði hækkað frekar en afnumið. Samfylkingin bendir á að borgarráð hafi nýlega samþykkt 90 prósenta afslátt af gatnagerðargjöldum vegna sameiginlegra bílakjallara. Fulltrúar flokksins segja afnám hámarksins heimila fleiri stæði á sama tíma og afslátturinn lækki gjöld byggingaraðila vegna bílakjallara. Þannig skapist hvati til að fjölga stæðum en borgarsjóður verði af tekjum. Borgin greiðir ekki fyrir kjallarana en kostnaður útsvarsgreiðenda felst, að mati flokksins, í gjöldum sem borgin innheimtir ekki.
Reykjavík Borgarstjórn Bílastæði Skipulagsmál Byggingariðnaður Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira