Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar 3. september 2026 14:02 Íslendingar tóku stóra ákvörðun um síðustu helgi. Niðurstaðan varð nei við því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. En prófum að snúa niðurstöðunni við. Hvað ef svarið hefði verið já? Á mánudagsmorgni hefðu stjórnendur íslenskra fyrirtækja mætt til vinnu við breyttar aðstæður. Ekki vegna þess að Ísland væri skyndilega komið í Evrópusambandið. Langt því frá. Heldur vegna þess að ný og stór óvissa hefði laumað sér inn í framtíðaráætlanir þeirra. Hvað hefði þetta þýtt fyrir fjárfestingar? Markaði? Fjármögnun? Samkeppni? Hvaða forsendur gætu breyst – og hvenær? Enginn hefði haft svörin við þessu. En þeir hefðu samt þurft að taka ákvarðanir. Að taka ákvörðun áður en við vitum svarið Þetta er ein stærsta áskorun stefnumótunar í dag. Stjórnendur þurfa í auknum mæli að taka stórar ákvarðanir án þess að geta treyst á eina líklega framtíð. Tökum sjávarútveg sem dæmi – án þess hér sé tekin afstaða til Evrópusambandsins. Sjávarútvegsfyrirtæki sem stæði frammi fyrir stórri fjárfestingu í skipi, vinnslu eða tækni hefði ekki endilega getað beðið í nokkur ár eftir því að pólitískt ferli kláraðist. En fyrirtækið hefði heldur ekki þurft að veðja á eina niðurstöðu. Stjórnendur hefðu getað spurt: Hvaða hluti fjárfestingarinnar skilar okkur verðmætum óháð niðurstöðunni? Hvað þurfum við að ákveða núna? Hvaða ákvarðanir getum við beðið með? Og hvaða breytingar í umhverfinu myndu valda því að við breyttum ákvörðuninni? Hvað ef við hættum að reyna að spá rétt? Þetta er kjarninn í aðferð sem kallast Robust Decision-Making, RDM, eða þolin ákvarðanataka á óvissutímum. Hugmyndin er í grunninn einföld: Í stað þess að finna þá stefnu sem er best ef spáin okkar reynist rétt, leitum við að stefnu sem stendur sig vel yfir margar mögulegar framtíðir. RDM byggir á því að skoða ólíkar mögulegar framtíðir, stress-prófa ákvarðanir gagnvart þeim og finna hvar veikleikar stefnunnar liggja. Aðferðin leggur jafnframt áherslu á aðlögunarhæfni: að taka þær ákvarðanir sem þarf í dag en halda valkostum opnum og fylgjast með merkjum sem segja okkur hvenær tímabært er að breyta um stefnu. Þetta er í samræmi við kjarna RDM eins og Robert Lempert lýsir aðferðafræðinni í Decision Making under Deep Uncertainty. Þetta er því ekki: Stefna → framkvæma → vona. Heldur: Stefna → mæla → læra → aðlaga. Næsta óvissa kemur Við vitum núna hvert svarið við ESB-spurningunni varð. En óvissa íslenskra fyrirtækja hvarf ekki með atkvæðagreiðslunni. Næsta stóra óvissa getur falist í gervigreind, viðskiptadeilum, vöxtum, stríðsátökum, loftslagi, nýrri tækni eða einhverju sem við sjáum ekki enn fyrir. Kannski er því mikilvægasta spurningin á næsta stjórnendafundi ekki: Hvað teljum við að muni gerast? Heldur: Hvað ætlum við að gera ef það sem við teljum að muni gerast – gerist ekki? Höfundur er stofnandi Podium ehf. og sérhæfir sig í stefnumótun, breytingastjórnun og sjálfbærni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Magnúsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar