Handbolti

Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum

Sindri Sverrisson skrifar
Arnór Snær Óskarsson verður áfram í algjöru lykilhlutverki hjá Val í vetur.
Arnór Snær Óskarsson verður áfram í algjöru lykilhlutverki hjá Val í vetur. vísir/Anton

Íslandsmeistarar Vals hófu nýja leiktíð í Olís-deild karla í handbolta á fjögurra marka sigri gegn Selfyssingum á útivelli, 34-30.

Heimamenn létu ríkjandi meistara hafa fyrir hlutunum í kvöld og voru yfir drjúgan hluta fyrri hálfleiks.

Valsmenn náðu þó forystunni fyrir leikhlé, 17-15, og höfðu þriggja til fjögurra marka forskot um miðjan seinni hálfleik. 

Mestur varð munurinn fimm mörk í lokin, 34-29, áður en Selfyssingar skoruðu lokamark leiksins.

Arnór og Gunnar í aðalhlutverkum

Besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð, Arnór Snær Óskarsson, og Gunnar Róbertsson, máttarstólpi úr hinu frábæra U18-landsliði Íslands, fóru fyrir Valsliðinu í kvöld.

Arnór skoraði 10 mörk úr 14 skotum og Gunnar 9 mörk úr 11 skotum. Hvor um sig skoraði fjögur mörk af vítalínunni. Björgvin Páll Gústavsson varði átta skot í marki Vals, eða 24% þeirra skota sem hann fékk á sig, og Jens Sigurðarson tvö skot eða 29%.

Hjá Selfossi vörðu Ísak Kristinn Jónsson og Alexander Hrafnkelsson fimm skot hvor en Ísak varði 38% þeirra skota sem hann fékk á sig á meðan Alexander varði 16%.

Hákon Garri Gestsson var markahæstur Selfyssinga með sjö mörk úr tíu skotum og Tryggvi Sigurberg Traustason skoraði sex mörk úr sjö skotum.

Öll tölfræði úr leiknum er fengin af vef HB Statz sem heldur utan um alla tölfræði úr Olís-deildunum.

Fyrr í kvöld vann KA öruggan útisigur gegn HK í fyrsta leik tímabilsins.


Tengdar fréttir

Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna

KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×