Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar 5. september 2026 14:32 Ferðaþjónustan hefur á skömmum tíma orðið stærsta og umfangsmesta atvinnugrein landsins. Henni fylgdu ákveðnir vaxtaverkir sem birtust meðal annars í hröðum vexti ferðamanna og innviðaskuld. Ég tel hins vegar að vel hafi tekist til við að mæta þeim áskorunum sem komu upp á þessum uppvaxtarárum og það hefur í raun verið ótrúlegt að fylgjast með uppbyggingu ferðaþjónustunnar, þá sérstaklega á landsbyggðinni. Forréttindi að skapa störf og verðmæti Ég var svo einstaklega heppinn að stíga mín fyrstu skref í ferðaþjónustu á þeim tíma þegar miklihvellur átti sér stað árið 2010 og Ísland varð á augabragði einn umtalaðasti áfangastaður heims. Ég hef því fengið að fylgja greininni í gegnum þessa krefjandi en skemmtilegu tíma og séð með eigin augum hvers virði hún er, fyrir efnahag landsins en ekki síður þjónustustig og lífsgæði landsmanna. Verandi frá Hornafirði og nú búandi og starfandi á Austurlandi eru áhrif ferðaþjónustunnar á þessi samfélög mér sérstaklega sýnileg. Hjá Tanna Travel höfum við vaxið með ferðaþjónustunni á Austurlandi og séð í eigin rekstri hvaða áhrif greinin getur haft. Fyrir okkur felast ákveðin forréttindi í því að geta skapað störf og verðmæti með því að kynna landshlutann okkar fyrir gestum, en ekki síður í því samstarfi sem verður til við önnur fyrirtæki og þjónustuaðila á svæðinu. Ferðaþjónustan hefur breytt til hins betra Þegar talað er um ferðaþjónustu hugsum við eðlilega fyrst um ferðamanninn. Hótelið sem hann sefur á, veitingastaðinn sem hann borðar á, Dusterinn sem hann ferðast með og afþreyinguna sem hann kaupir. En mér finnst stundum gleymast hvað situr eftir þegar ferðamaðurinn fer heim. Það sitja eftir veitingastaðir sem við heimamenn getum farið á. Fleiri störf og fjölbreyttari atvinnutækifæri. Fyrirtæki sem annars hefðu tæplega orðið til. Betri afþreying, þjónusta og innviðir. Aukin tækifæri fyrir ungt fólk að búa og starfa utan höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur líka gefið fólki færi á að skapa sér atvinnu úr því sem áður var kannski bara fallegt gil, gönguleið, gamalt hús, saga úr heimabyggð eða hugmynd sem enginn hafði áður séð viðskiptatækifæri í. Veikjum ekki uppbygginguna Mér finnst það stundum gleymast í umræðunni um ferðaþjónustu. Við tölum mikið um fjölda ferðamanna, álag og verð en minna um það hversu mikið greinin hefur breytt íslensku samfélagi til hins betra. Ferðaþjónustan er ekki fullkomin atvinnugrein og hún hefur sannarlega skapað áskoranir. En þegar við ræðum framtíð hennar eigum við líka að muna hvað hún hefur byggt upp, og hvað við sjálf höfum fengið til baka. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við hugsum okkur vel um áður en við tökum ákvarðanir sem veikja þessa uppbyggingu. Ekki vegna þess að ferðaþjónustan eigi að njóta einhverrar sérstöðu, heldur vegna þess að afkoma hennar hefur áhrif langt út fyrir fyrirtækin sjálf. Blómleg ferðaþjónusta skilar sér nefnilega ekki bara til ferðamannsins. Hún skilar sér heim til íslenskra samfélaga. Höfundur er sölu- og markaðsstjóri Tanna Travel. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Ferðalög Atvinnurekendur Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar