Formúla 1

Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton

Andri Broddason skrifar
Léleg keppni á heimavelli hefur sett upp sögusagnir um deilur milli Charles Leclerc og Lewis Hamilton.
Léleg keppni á heimavelli hefur sett upp sögusagnir um deilur milli Charles Leclerc og Lewis Hamilton. Samsett/Getty

Ferrari átti ekki góðan kappakstur á heimavelli liðsins á Ítalíu um helgina en liðið fékk aðeins átta stig. Ökumennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton slá á sögusagnir um að samband þeirra sé orðið þungt.

Ítalski kappaksturinn fór fram á Monza-brautinni í gær og er þetta stór helgi fyrir Ferrari á hverju ári. Það jafnast fátt við það en að vinna á heimavelli og var það klárlega markmiðið fyrir Ferrari í gær.

Það endaði ekki á að ganga vel þar sem í fyrstu beygju kappakstursins endaði Charles Leclerc að ýta Lewis Hamilton nánast af brautinni. Við það missti Lewis Hamilton nokkra bíla fram úr sér og hann átti í erfiðleikum með að vinna sætin aftur til baka.

Skömmu síðar missti Charles Leclerc stjórn á bílnum sínum og endaði hann í veggnum fyrir framan ítölsku stuðningsmennina. Því var Ferrari aðeins með einn bíl í keppninni og endaði hann í sjötta sæti.

„Við vorum báðir á góðum stað í keppninni og ef við hefðum endað þar þá hefðum við fengið mun betri niðurstöðu. Við töpuðum mikið á því og skoruðum fá stig sem er leiðinlegt fyrir liðið,“ sagði Lewis Hamilton eftir keppnina.

Charles Leclerc lenti harkalega á dekkjavegg og fann aðeins til stuttu eftir áreksturinn. Hann var þó ekki lengi að jafna sig og í viðtali við TheRace eftir kappaksturinn útskýrði hann að það væri ekkert slæmt milli hans og Hamilton.

„Þetta gekk of langt í dag með Lewis [Hamilton] í fyrstu beygju. Í annarri beygju reyndi ég að taka þrengstu mögulegu beygju, en það var ekki nóg og að lenda í þessu hér er ekki gott.“

Fred Vasseur, liðsstjóri Ferrari, þarf að setja skýrar línur og passa að barátta milli ökumannanna sinna láti liðið ekki tapa stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×