„Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. september 2026 11:19 Þorgerður sagði kortið ekki fyndið grín. Vísir/Samsett Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja kort Bandaríkjaforseta þar sem Ísland var hluti af Bandaríkjunum ekki fyndið. Það sé ekkert grín að ógna fullveldi ríkja á þennan máta sem sé sömuleiðis móðgandi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd á samfélagsmiðlum þar sem Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland voru öll lituð með bandaríska fánanum og á stóð Bandaríkin. Í kjölfarið kallaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á sinn fund. Hún er sögð hafa brýnt fyrir Long að færslan væri óviðeigandi. „Þetta var náttúrulega alveg skýrt af okkar hálfu og það var ástæða til þess að kalla sendiherrann á fund og setja fram alveg skýr skilaboð af okkar hálfu um að þetta væri algjörlega óviðeigandi,“ sagði Þorgerður aðspurð um viðbrögð á blaðamannafundi í morgun. Hún hafi heyrt innan úr bandarískri stjórnsýslu að taka núverandi Bandaríkjaforseta bókstaflega en samt sem áður eigi að taka honum alvarlega. Þrátt fyrir allt þetta haldi Ísland áfram samstarfi sínu við Bandaríkin en í því felist ýmis tækifæri. „Ég undirstrika að Ísland er fullvalda, sjálfstætt ríki sem ber ábyrgð á sínum örlögum sjálft,“ segir Þorgerður. „Þetta er ekki grín að mínu mati. Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín.“ Móðgun við Íslendinga Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók einnig til máls um atvikið og tók undir orð Þorgerðar. „Að mínu mati er þessi undirtónn sem þarna heyrist fáránlegur. Þetta er móðgun við Íslendinga, Kanadamenn, Grænlendinga, að tjá sig með þessum hætti og við eigum að vera skýr með það,“ segir Kristrún. „Það er ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja, sérstaklega í dag þegar það er ekki sjálfgefið.“ Hún hyggst ítreka þessi orð í samskiptum sínum við ráðamenn vestanhafs en tekur fram að hún hafi ekki fundið fyrir því að þetta vandamál væri til staðar í almennum samskiptum við ráðamennina. „Það er augljóslega ekki eðlilegar aðstæður sem við erum að finna okkur í þessum hluta heimsins.“
Donald Trump Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Grænland Kanada Utanríkismál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira