Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 22:11 Olise var ekki skemmt yfir sérkennilegum spurningum spyrilsins. Úr varð agalega óþægilegt sjónvarpsefni. Skjáskot/Sýn Sport „Þetta er bara eitt það pínlegasta sem ég hef séð,“ sagði í Meistaradeildarmörkunum eftir viðtal við Michael Olise eftir leik kvöldsins. Viðtalið var ekki gott líkt og viðbrögð sérfræðinga þáttarins sýna.
Olise var tekinn tali af þýskum viðtalsmanni DAZN í opinberri útsendingu og viðtalinu var streymt til rétthafa um allan heim, þar á meðal til Sýnar Sport á Suðurlandsbraut. Viðtalið var sýnt í Meistaradeildarmörkunum eftir leiki kvöldsins. Spyrillinn spurði Olise meðal annars að því hvernig hann færi að því að skora svona flott mörk, enginn annar gæti það og spurði hann einnig hvað fengi hann til að brosa og hlæja. Úr varð óbærilega vandræðaleg og óþægilegt viðtal sem sjá má í spilaranum líkt og viðbrögð sérfræðinga Meistaradeildarmarkanna. „Oh my god,“ kallaði Kjartan Henry Finnbogason upp hlæjandi áður en hann huldi höfuð sitt í höndunum. „Þetta er bara eitt það pínlegasta sem ég hef séð,“ sagði Albert Brynjar Ingason álíka sjokkeraður. Skjáskot af viðbrögðum sérfræðinganna eftir að viðtali lauk. Myndin segir í raun allt sem segja þarf.Sýn Sport „Spyrillinn var hræðilegur. Þetta voru ömurlegar spurningar,“ segir Kjartan Henry en Albert sagði þetta ekki síður liggja hjá óhressum Olise. „Þetta var aðallega Olise sem gerði þetta vont. Ég fann til með gæjanum sem var að taka þetta viðtal. Hann nennti þessu ekki neitt,“ sagði Albert. „Þetta er ástæðan fyrir því að ég er hættur að taka viðtöl. Ég stend ekki í þessu,“ sagði stjórnandinn Guðmundur Benediktsson. Þetta óbærilega viðtal auk viðbragða og umræðu sérfræðinga Sýnar Sport má sjá í spilaranum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Þýski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sjá meira