„Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Smári Jökull Jónsson skrifar 13. september 2026 14:11 Gunnhildur Lilý Magnúsdóttir er dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö. Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Ulf Kristersson núverandi forsætisráðherra gætu bæði lent í vandræðum að mynda ríkisstjórn fái þau umboð til þess. Vísir/Gett Útlit er fyrir afar spennandi þingkosningar í Svíþjóð í dag en mjótt er á munum á milli blokkanna tveggja til hægri og vinstri. Dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö segir að myndun stjórnar gæti orðið erfið bæði til hægri og vinstri og fjarhægriflokkur eygir von um sæti við ríkisstjórnarborðið. „
Það er mikil spenna,“ sagði Gunnhildur Lilý Magnúsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö en hún var í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er mjög jafnt á milli blokkanna. Annars vegar núverandi ríkisstjórnar, sem sagt borgaralegu blokkarinnar, og stjórnarandstöðunnar þó að stjórnarandstaðan sé með örlítið meira fylgi. En munurinn hefur minnkað sérstaklega á síðustu tveimur til þremur vikum,“ bætti Gunnhildur Lilý við. Fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar, sem nú eru stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar, hefur gert kröfu um ráðherrastóla haldi stjórnin velli. Flokkurinn er stofnaður á grunni nýnasismans en hefur reynt að taka til innan sinna raða síðustu árin. Gætu fengið ráðherrastóla í fyrsta skipti Þetta yrði í fyrsta sinn sem flokkurinn sæti í ríkisstjórn sem Gunnhildur segir afar umdeilt. „Það hefur verið talsvert í umræðunni hér að þeir séu of hliðhollir Rússum, að þeir hafi tengsl við Rússland. Og hvaða áhrif það gæti haft ef að þeir tækju við dómsmálum eða málefnum flóttamanna og innflytjenda. Það er líka verið að kjósa um það og kjósendur að taka afstöðu til þess hvort þeir séu tilbúnir að fá ríkisstjórn þar sem Svíþjóðardemókratar eru í stjórn.“ Bæði vinstri og hægri blokkin hafa verið í vandræðum í aðdraganda kosninga. Tæpt er hvort einn ríkisstjórnaflokkanna, Frjálslyndi flokkurinn, nái inn á þing og þá mælist flokkur forsætisráðherrans Ulf Kristersson minni en oft áður. „Það gæti verið að þeir þurfi einn flokk í viðbót til að verja þá falli. Þar sem Frjálslyndi flokkurinn er lítill og Moderaterna, hófsamur hægrimenn og flokkur Ulf Kristersson forsætisráðherra, hefur líka misst fylgi. Hluti af þeirra fylgi hefur farið yfir til Miðflokksins sem er stjórnarandstöðuflokkur. Sá flokkur myndi ekki verja ríkisstjórn falli með Svíþjóðardemókrötum innanborðs. Daðrað þvert á milli blokka Á vinstri vængnum eru einnig vandræði því Miðflokkurinn er í oddastöðu en hefur hafnað að vinna í ríkisstjórn með Vinstriflokknum. Þá hefur formaður Kristilegra demókrata, sem situr í ríkisstjórn, daðrað við formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka og því gætu blokkirnar splundrast. „Það gæti verið að Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, muni reyna að mynda stjórn með Miðflokknum og þá kannski hugsanlega Kristilegum demókrötum. Það yrði þá einhvers konar miðjustjórn með stuðningi Græningja. Græningjar hafa verið helsti samstarfsflokkur Jafnaðarmanna og sátu með þeim síðast í ríkisstjórn.“ „Þannig að þetta er spurning hvaða flokkar mynda ríkisstjórn og hverjir verða stuðningsflokkar.“ Í gær hafi Andersson sagt hreint út að hún teldi Vinstriflokkinn ekki tilbúinn til að vera hluta af hennar ríkisstjórn. „Það voru kannski skilaboð sem margir kjósendur höfðu verið að bíða eftir því það hefur sennilega haft talsverð áhrif á fylgi Jafnaðarmanna undanfarnar vikur að sumum hefur fundist Andersson gefa óljós skilaboð um hvernig Jafnaðarmenn hafa hugsað sér að mynda ríkisstjórn.“ Miðvikudagsatkvæðin gætu skipt sköpum Vinstriflokkurinn hefur aldrei setið í ríkisstjórn en oft varið vinstri stjórnir falli. Miðflokkurinn hefur útilokað að starfa í ríkisstjórn með Vinstriflokknum. Sænska ríkissjónvarpið mun birta spá um niðurstöður í kvöld en kjörstaðir í Svíþjóð loka flestir klukkan sex að íslenskum tíma. Verði munurinn á milli blokkanna lítill gæti farið svo að úrslit ráðist ekki fyrr en um miðja næstu viku þegar svokölluð miðvikudagsatkvæði verða talin en það eru atkvæði Svía sem búa erlendis og önnur utankjörfundaratkvæði sem ekki bárust fyrir lokun kjörfundar. „Það eru hátt í 370 þúsund sem eru á kjörskrá sem búa erlendis en við vonumst auðvitað til að hafa nokkuð góða mynd af úrslitunum jafnvel um miðnætti í kvöld á sænskum tíma,“ sagði Gunnhildur Lilý að lokum.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Sjá meira