Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Áróra L Davíðsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa 13. september 2026 18:48 Útlit er fyrir að Magdalena Andersson, leiðtogi Sósíaldemókrata, fái það hlutverk að mynda ríkisstjórn. EPA/JONAS EKSTROMER Samkvæmt útgönguspám SVT og TV4 í Svíþjóð er fylking Magdalenu Andersson og stjórnarandstöðunnar með naumt forskot á fylkingu núverandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga.
Í dag fóru fram þingkosningar í Svíþjóð og lokuðu flestir kjörstaðir klukkan sex að íslenskum tíma. Mjótt hefur verið á munum milli blokkanna tveggja til hægri og vinstri í skoðanakönnunum. Samkvæmt útgönguspá SVT fær rauðgræna blokk stjórnarandstöðunnar 51,3 prósent en stjórnarflokkarnir fjórir samtals 46,8. Vinstri blokkin er því með 4,5 prósentustiga forskot en hörð barátta hefur verið milli fylkinganna tveggja. Síðustu fjögur ár hefur minnihlutastjórn hægriflokka verið við völd í Svíþjóð með Ulf Kristersson, formann Moderaterna, í forystu en segja má að Moderaterna sé systurflokkur Sjálfstæðisflokksins hér á landi. Athygli vekur að Moderaterna fær 18,1 prósent og mælist næststærstur en Svíþjóðardemókratar eru þriðji stærsti flokkurinn og tapar fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga. Frjálslyndir mælast inni á þingi en töluverð hætta var á að flokkurinn myndi ekki ná yfir fjögurra prósenta fylgi sem þarf til að komast á þing. Mælast Frjálslyndir með 5,4 prósent samkvæmt útgönguspám SVT en Jimmie Åkesson formaður Svíþjóðardemókrata hafði hvatt stuðningsmenn sína til að kjósa taktískt og tryggja Frjálslynda inn á þing til að auka líkurnar á að stjórnin héldi velli. Jafnaðarmenn eru stærstir með 28,4 prósent sem er tæpum tveimur prósentum minna en í síðustu kosningum og útlit fyrir að leiðtogi þeirra, Magdalena Andersson, fái það hlutverk að mynda ríkisstjórn. Samkvæmt útgönguspám TV4 er munurinn á milli blokkanna aðeins minni, stjórnarandstaðan mælist þar með 51,3 prósent en stjórnarflokkarnir 47 prósent. Verði munurinn á milli blokkanna lítill gæti farið svo að úrslit ráðist ekki fyrr en um miðja næstu viku þegar svokölluð miðvikudagsatkvæði verða talin, en það eru atkvæði Svía sem búa erlendis og önnur utankjörfundaratkvæði sem ekki bárust fyrir lokun kjörfundar.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira