Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. september 2026 21:13 Flestir þeirra sem vildu breyta ferðavenjum sínum vildu nota strætó og skilja bílinn eftir heima. Vísir/Vilhelm Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu.
Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Tilraunaborgir á vegum Reykjavíkurborgar sem nýlega voru kynntar í umhverfis- og skipulagsnefnd. Niðurstöðurnar er að finna á vef Reykjavíkurborgar. Einkabíllinn sé enn langalgengasti ferðamáti borgarbúa en þriðjungur svarenda segist vilja skipta um ferðamáta. „Alls búa 98% svarenda nógu nálægt vinnustað sínum til að geta nýtt virka ferðamáta, en helstu hindranir eru kostnaður, áreiðanleiki og skortur á samkeppnishæfum valkostum við einkabílinn,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Flestir segja strætó taka of langan tíma Flestir þeirra sem vildu breyta ferðavenjum sínum vildu nota almenningssamgöngur í staðinn fyrir einkabíl, eða 38 prósent. 16 prósent vildu nota rafhjól eða rafhlaupahjól og 11 prósent vildu fara gangandi. Aðspurðir hvaða hindrun kæmi í veg fyrir að þátttakendur sem sögðust vilja breyta ferðavenjum sínum breyttu aðalferðamáta sínum í strætó svöruðu því flestir að strætó tæki of langan tíma. Næstflestir sögðu að erfitt væri að sinna erindum með strætó. Flestir flokka Samkvæmt niðurstöðunum flokka yfir 90 prósent borgarbúa reglulega pappír, plast og lífrænan úrgang. Rúmlega helmingur flokkar einnig sérstaklega efni eins og lyf, húsgögn og byggingarúrgang. Þá endurvinna 97 prósent þátttakenda skilagjaldsskyldar umbúðir, svo sem drykkjarflöskur og dósir. Endurvinnsla á öðrum úrgangsflokkum en heimilisúrgangi ráðist af því hversu auðvelt og þægilegt sé að nálgast ólík endurvinnsluúrræði og því plássi sem fólk hefur á heimilum sínum til flokkunar. „Niðurstöðurnar undirstrika að lykillinn felst fyrst og fremst í bættum innviðum, bæði fyrir úrgangsflokkun og vistvænar samgöngur. Íbúar lýsa vilja til breytinga en leggja áherslu á að lausnirnar þurfi að vera einfaldar, aðgengilegar og henta daglegu lífi fólks,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.
Reykjavík Bílar Strætó Sorpa Umhverfismál Samgöngumál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira