Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Árni Jóhannsson skrifar 15. september 2026 21:43 Leikmenn Breiðabliks þyrpast að Gabríel Snæ Hallsyni (29) sem skoraði annað mark gestanna í kvöld. Vísir / Diego Gabríel Snær Hallsson var mikill örlagavaldur fyrir sína menn í Breiðablik í kvöld. Hann lagði upp fyrsta markið sem Breiðablik skoraði og skoraði annað markið en Blikar unnu Fram á útivelli 3-1 og sýndu engin merki um bikarþynnku.
Þetta var í raun og veru frábær sigur Breiðabliks, enda búnir að eiga erfitt í deildinni og umræða um bikarþynnku sveif yfir vötnum fyrir leik. Hvað voru Blikar að gera rétt í kvöld? „Við bara mættum til leiks. Við erum búnir að vera í brasi með að mæta tilbúnir í leikina í sumar frá fyrstu mínútu. Erum oft að fá á okkur mörk snemma, sérstaklega á móti Fram og í dag ætluðum við að mæta. Vildum sýna úr hverju við erum gerðir, skora mörk og vinna.“ Breiðablik mætti svo sannarlega og skoraði mörkin í kvöld en afhverju er það núna sem Blikar mæta til leiks í deildarleik? „Við erum búnir að vera í brasi. Ágúst mánuður hefur ekki verið sem bestur og við fengum mikið sjálfstraust með því að vinna bikarinn. Svo bara vorum við komnir með fo..., afsakið orðbragðið, komnir með nóg af því að tapa leikjum. Við ætlum nú að vinna og halda siglingunni áfram.“ Gabríel skoraði sitt fyrsta mark í kvöld og var spurður út í tilfinninguna. „Bara frábær tilfinning. Geggjað að vera búinn að skora fyrsta markið en ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu og ég hlakka til að skora fleiri.“ Hvað ætla Blikar að taka með sér út úr þessum leik? „Bara sigurinn og ákefðina.“
Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Sjá meira