Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 15:45 Mikael Anderson sneri aftur til AGF í sumar eftir árs dvöl í Svíþjóð, hjá Djurgården. Getty/Ulrik Pedersen Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson þurfti að heyra kynþáttaníð og hinseginhatur í leik í dönsku úrvalsdeildinni. Framkvæmdastjóri Silkeborgar leyfði sér að efast um að Mikael segði satt frá en nú hafa sönnunargögn verið birt.
Mikael, sem í dag var valinn í nýjasta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni, var að spila heimaleik með liði sínu AGF Aarhus gegn Silkeborg þann 5. september þegar hann varð fyrir kynþáttaníði. Stuðningsmenn útiliðsins, Silkeborg, kölluðu fúkyrði að Mikael eins og heyra má í myndbandinu hér að neðan og voru þau ekki bara rasísk heldur einnig hómófóbísk. Myndbandið er úr upptöku ljósmyndara KSDH og þar heyrist meðal annars hrópað „fokking Indónesi“ og „fokking hali“ en síðarnefndu ummælin eru á dönsku niðrandi slangur í garð samkynhneigðra. Upptakan hefur verið send til aganefndar danska knattspyrnusambandsins en AGF vísaði málinu strax til aganefndarinnar. „Við höfum enga þolinmæði fyrir svona hegðun og viljum að þeim verði refsað sem verða uppvísir að svona löguðu,“ sagði í tilkynningu forráðamanna AGF sem settu sig einnig í samband við kollega sína hjá Silkeborg. Framkvæmdastjórinn sagði engan hafa heyrt neitt Mikael deildi hlekk á upptökuna á Instagram og einnig viðtali við Kent Madsen, framkvæmdastjóra Silkeborgar, sem dregið hafði í efa að um nokkurt kynþáttaníð hefði verið að ræða. Það getur hann ekki lengur nú þegar upptakan er komin fram. „Það sem er svolítið óljóst fyrir okkur er í raun hvað nákvæmlega gerðist. Hvorki fólkið sem við vorum með í stúkunni fyrir stuðningsmenn gestaliðsins, sem voru ekki nokkur þúsund manns heldur frekar 400 stuðningsmenn, né dómararnir urðu varir við neitt. Við höfum upplýst að fólkið sem við vorum með á staðnum hafi ekki orðið vart við neitt,“ sagði Madsen við miðilinn Campo. „Það væri auðveldara ef okkar fólk [í stúkunni] hefði heyrt þetta, en það gerði það ekki. Þess vegna hef ég leyft mér að segja að ég voni að þetta sé misskilningur,“ sagði Madsen en bætti þó við að ef hægt væri að finna mögulega sökudólga þá yrði þeim refsað með banni.
Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira