„Maður getur varla beðið um meira“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 19. september 2026 13:06 Sölvi Blöndal er forsprakki hljómsveitarinnar. Hann lofar góðu stuði í kvöld. Aðsend Stórtónleikar hljómsveitarinnar Quarashi fara fram í Laugardalshöll í kvöld en tilefnið er þrjátíu ára afmæli sveitarinnar. Stærstu slagararnir verða teknir, gestir mæta á svið og forsprakki hljómsveitarinnar segir að þakið muni rifna af húsinu, svo mikil verði stemningin.
Hljómsveitin er ein áhrifamesta sveit landsins og hlaut mikla velgengni alþjóðlega. Lagið Stick -Em Up fékk til að mynda spilun á MTV og varð eitt þekktasta lag sveitarinnar. Quarashi fagnar þrjátíu ára afmæli og segir Sölvi Blöndal, einn forsprakki hljómsveitarinnar, að tónleikarnir verði þeir stærstu til þessa. „Við seldum út Laugardalshöllina árið 2002 og þá var það í fyrsta sinn sem íslenskt band gerði það. Núna erum við að endurtaka leikinn og er þetta þrjátíu ára afmælið okkar. Við hugsuðum að þrjátíu ára afmæli væri góður tímapunktur til að halda skemmtilega tónleika, þá er maður ekki of gamall og ekki of ungur.“ Tónlistin hafi lifað Allir stærstu slagararnir verða teknir í kvöld í bland við ný lög. Emmsjé Gauti, Gísli Pálmi og Mugison eru á meðal gesta og segir Sölvi von á frábæru partýi. „Það er ótrúlegt hvað það er mikið af ungu fólki sem er aðdáendur Quarashi og maður er mjög þakklátur fyrir það að þetta einhvern veginn endurnýjast kynslóð eftir kynslóð. Maður getur varla beðið um meira og það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þetta er að sjá hvernig þessi tónlist hefur lifað.“ Dagskráin hefst klukkan hálf sjö og verður dansað fram til lokunar. Nálgast má upplýsingar um miðakaup á Tix.is. „Við sprengjum þetta hús í loft upp.“
Tónleikar á Íslandi Tónlist Tengdar fréttir Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24. júní 2026 15:56 Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Steinar Orri Fjeldsted, einn meðlima rappsveitarinnar Quarashi, segir ekkert annað hafa komið til greina en að sveitin sameinaðist eftir áratugarhlé þegar boð barst frá Lopapeysunni á Akranesi. Allir meðlimir sveitarinnar eiga þangað rætur að rekja og lofar hann miklu stuði í kvöld. 5. júlí 2025 14:08 Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. 18. júní 2025 11:15 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Fleiri fréttir Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Sjá meira
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24. júní 2026 15:56
Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Steinar Orri Fjeldsted, einn meðlima rappsveitarinnar Quarashi, segir ekkert annað hafa komið til greina en að sveitin sameinaðist eftir áratugarhlé þegar boð barst frá Lopapeysunni á Akranesi. Allir meðlimir sveitarinnar eiga þangað rætur að rekja og lofar hann miklu stuði í kvöld. 5. júlí 2025 14:08
Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. 18. júní 2025 11:15
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“