Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 20:30 Fáum þykir líklegt að eitthvað óvænt muni gerast í kosningunum í Rússlandi um helgina. Flokkur Pútíns, sem stjórnar nú þegar rúmlega tveimur þriðju af þingsætum á Dúmunni, mun að öllum líkindum halda nægilegum meirilhuta til að gera breytingar á stjórnarskrá Rússlands án vandræða. AP/Gavril Grigorov, Sputnik Rússar ganga að kjörborðinu um helgina og eiga þeir þar að velja á milli tíu flokka, sem allir virðast sammála stærsta flokki landsins og Vladimír Pútín. Eini flokkurinn sem stóð gegn stríðinu í Úkraínu hefur verið bannaður.
Þetta eru fyrstu kosningarnar sem haldnar eru í Rússlandi frá því innrásin í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Ráðamenn í Rússlandi vilja, samkvæmt AP fréttaveitunni, nota kosningarnar til að undirstrika stuðning almennings við stríðið og auka lögmæti innrásarinnar heima fyrir. Til þessa er þegar búið að koma í veg fyrir andóf í kosningunum. Flokkur Vladimírs Pútín, forseta, kallast Sameinað Rússland. Fastlega er búist við því að sá flokkur muni bera sigur úr býtum í kosningunum. Einnig eru aðrir níu flokkar á kjörseðlinum en stefnur þeirra eru allar í takt við stefnur Sameinaðs Rússlands. Í ávarpi sem Pútín hélt í vikunni sagði forsetinn, sem hefur stýrt Rússlandi frá 2001, að með kosningunum myndu Rússar sýna enn eina ferðina að milljónir þeirra standi við bak rússneskra hermanna. Að rússneska þjóðin stæði saman á grunni sameiginlegra gilda, sögu og móðurlandsástar. In a TV address to the nation ahead of this weekend’s parliamentary and local elections, Putin has urged voters to show that millions of people are behind the Russian troops fighting in UkraineGiven he’s had the only anti-war party banned, he can be sure he’ll get what he wants pic.twitter.com/OwJNA3WOTz— Francis Scarr (@francis_scarr) September 16, 2026 Stríðið spilar stóra rullu Kosningarnar munu hefjast á morgun og standa yfir alla helgina. Þá munu kjósendur velja sér 450 fulltrúa á Dúmuna, neðri deild rússneska þingsins. Sameinað Rússland heldur rúmlega tveimur þriðju af þingsætunum Kosningarnar verða einnig haldnar á hernumdum svæðum í Úkraínu. Á meðal frambjóðenda eru tæplega tvö hundruð uppgjafarhermenn sem börðust í Úkraínu, samkvæmt frétt BBC. Steve Rosenberg, fréttamaður BBC í Moskvu, bendir á að í lok þingsins í júlí hafi allir þingmenn staðið upp og kallað: „Rússland, Pútín, sigur! Rússland, Pútín, sigur!“ Þetta er til marks um þá stjórn sem Pútín hefur á þinginu. Hver einasti flokkur þingsins hefur stutt öll 170 frumvörpin sem hafa verið lögð fram og snúa að innrásinni í Úkraínu. Þeir sem mótmæla stríðinu fá ekki að taka þátt í kosningunum og hafa jafnvel verið sendir í fangelsi. Lev Shlosberg sem leitt hefur Yabloko, frjálslyndan stjórnarandstöðuflokk, var í sumar dæmdur í rúmlega ellefu ára fangelsi vegna andstöðu hans við stríðið í Úkraínu. Áður hafði hæstiréttur Rússlands bannað flokki hans að bjóða fram í þingkosningunum. Nánar tiltekið var Shlosberg dæmdur á grunni laga sem meina fólki að kasta rýrð á rússneska herinn og dreifa rangindum um hann. Þessi lög hafa yfirvöld í Rússlandi notað til að þagga niður í fjölmörgum andstæðingum sínum og bæla niður andóf gegn stríðinu. Þótt flokkurinn sé ekki á kjörseðlum hafa frambjóðendur hans verið í framboðum víðs vegar um Rússland. Á undanförnum vikum hafa fjölmargir þeirra verið handteknir og ákærðir fyrir ýmis brot. Í kjölfarið hefur þeim verið meinað að bjóða sig fram til þings. Einræði með kosningar Í frétt Moscow Times segir að stjórnmálafræðingar séu einróma um að innrásin í Úkraínu hafi markað mikinn vendipunkt hvað varðar kosningar í Rússlandi. Rússlandi sé nú lýst sem kosningabundnu einræðisríki. Ríki þar sem valdstjórn heldur áfram að efna til kosninga en hefur harða stjórn á þeim skilyrðum sem kosningarnar fara fram við. Einn stjórnmálafræðingur sagði frambjóðendur ekki geta tjáð sig opinberlega með frjálsum hætti. Þá ættu þeir einnig erfitt með að rökræða málefni sem rússneskur almenningur stendur frammi fyrir vegna takmarkana yfirvalda. Í grein BBC segir Rosenberg frá því að á dögunum hafi þáttastjórnandi boðið áhorfendur velkomna á kappræður fyrir 158 kjördæmi Rússlands, þar sem sex menn eru í framboði. Enginn þeirra mætti þó í kappræðurnar. Moscow Times segir þetta nokkrum sinnum hafa gerst í aðdraganda kosninganna. Pútín hefur sjálfur ekki einu sinni tekið þátt í kappræðum og aðrir frambjóðendur Sameinaðs Rússlands gera það mjög sjaldan.
Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira