Seldur frá Keflavík til Sýrlands Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2026 13:30 Muhamed Alghoul átti sinn þátt í afar óvæntri velgengni Keflvíkinga í sumar. vísir/Viktor Eftir að hafa átt sinn þátt í frábæru tímabili Keflavíkur í sumar er fótboltamaðurinn Muhamed Alghoul að fara að spila með nýju liði í rúmlega 5.000 kílómetra fjarlægð frá Íslandi.
Sýrlenska félagið Homs Al-Fidaa hefur fest kaup á Alghoul en þetta tilkynntu Keflvíkingar á miðlum sínum í dag. Alghoul kom fyrts til Keflavíkur sumarið 2023 og lék þar út tímabilið áður en hann hélt aftur til Króatíu. Hann sneri svo aftur til Keflavíkur fyrir síðustu leiktíð og var lykilmaður í að koma liðinu upp í Bestu deildina og festa það í sessi í efri hlutanum fyrir tvískiptinguna nú í haust. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp ellefu í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð og fór síðan á kostum í umspilinu þar sem hann lagði upp fimm mörk. Alghoul, sem er Palestínumaður en fæddur í Króatíu, hefur svo skorað fjögur mörk og átt þrjár stoðsendingar í Bestu deildinni á þessari leiktíð. Hann var frá keppni í skamman tíma eftir að hafa nefbrotnað á æfingu í lok júlí, eftir högg frá liðsfélaga sínum Alpha Conteh. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur, sagði í viðtali við Vísi á dögunum að atvikið hefði ekki haft frekari afleiðingar, aðrar en þær að Alghoul missti af þremur leikjum. „Þessir leikmenn hafa staðið sig frábærlega vel og þó að þeir hafi lent í stimpingum þá held ég að þeir hafi stigið upp báðir tveir. Þetta er bara partur af fótbolta og það er bara betra að það sé einhver kappsemi á æfingum líka sem ýtir við mönnum,“ sagði Sindri meðal annars.
Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira