Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Birgir Olgeirsson skrifar 17. september 2026 16:27 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á markaðsdegi Ganga og brúar í Hörpu. Hún segir víða gæta óþols gagnvart hægagangi og vill finna nýjar leiðir til að koma stórum verkefnum í verk, um leið og reglur séu virtar. Stofnun innviðafélagsins Ganga og brúar er líka pólitískt verkefni um að sýna að lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir geti komið stórum hlutum í verk, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún segir stóra erlenda fjárfesta sýna félaginu áhuga og að með því skapist fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut og fleiri stór samgönguverkefni.
Kristrún ræddi við Vísi í tengslum við markaðsdag félagsins í Hörpu í dag. Þar voru félagið og verkefni þess kynnt innlendum og erlendum ráðgjöfum og fjárfestum. Innviðaráðuneytið og Göng og brú undirrituðu jafnframt viljayfirlýsingu um þróun samgöngumannvirkja. Óþol gagnvart hægagangi Kristrún var spurð út í viðvörun sína á markaðsdeginum um að ef lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir kæmu ekki hlutum í verk myndu aðrir taka við sem brytu grundvallarreglurnar. Við hverju væri hún að vara? „Ég trúi því bara einlægt að í lýðræðisríkjum þurfum við að sýna fram á það að við getum áfram, eða við getum byggt og gert stóra hluti. Það er víða ákveðið óþol gagnvart hægagangi í svona eldri kerfunum okkar.“ Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Ganga og brúar, og Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra handsala viljayfirlýsingu um þróun samgöngumannvirkja. Meðal verkefna sem þar eru tilgreind eru Sundabraut, Fljótagöng og stækkun Hvalfjarðarganga. Hún leggur áherslu á að virða þurfi reglur og vanda umgjörð verkefna. Jafnframt segir hún þróun lýðræðis í heiminum hafa verið beintengda því að fólk upplifi að framþróun hafi verið erfið í stórum málaflokkum. Stofnun innviðafélagsins hafi því pólitíska þýðingu í hennar huga, samhliða hlutverki þess í samgönguframkvæmdum. „Þannig að ég horfi á þetta sem bara pólitískt verkefni líka, að sýna að við getum hugsað hluti upp á nýtt.“ Hún tengir leitina að nýjum leiðum innan kerfisins við það að koma í veg fyrir að óánægjan leiði til þess að dýrmætum þáttum þess verði fórnað. „Við getum svona, sveigt eða að minnsta kosti fundið nýjar leiðir inni í núverandi kerfum til þess að koma í veg fyrir að við sjáum þróun hér í pólitíkinni sem kannski rífur í sundur það sem er okkur dýrmætast.“ Þetta skýri jafnframt hvers vegna ríkisstjórnin leggi svo mikinn pólitískan stuðning við verkefnið, segir Kristrún. Segir erlenda stórfjárfesta sýna áhuga Kristrún lýsir markaðsdeginum sem stórum degi í sögu samgönguframkvæmda á Íslandi. Þátttakan sýni trú og áhuga alþjóðlegra fjárfesta. „Auðvitað hefur oft verið talað um þátttöku íslenskra lífeyrissjóða í svona verkefnum og það er auðvitað mikilvægt. Innlendir og erlendir fjárfestar og ráðgjafar kynntu sér áform Ganga og brúar. Kristrún segir áhugann ná út fyrir íslenska lífeyrissjóði og nefnir meðal annars stóra erlenda innviðasjóði og stofnanafjárfesta. En það eru líka margir af stærstu innviðasjóðum annarra landa og stórir erlendir stofnanafjárfestar sem eru að sýna þessu áhuga þannig að við getum bara verið mjög stolt í dag.“ Samkvæmt tilkynningu um markaðsdaginn er hann hluti af útboðsferli félagsins á Evrópska efnahagssvæðinu. Þar er lögð áhersla á samstarf við ráðgjafa, fjármögnunaraðila og verktaka. Vaðlaheiðargöng þegar í félaginu Kristrún segir Vaðlaheiðargöng þegar vera í félaginu. Þá sé horft til þess að Hornafjarðarbrú og Ölfusárbrú færist einnig þangað inn. Í framhaldinu sé ætlunin að ráðast í Fljótagöng. Með félaginu skapist jafnframt fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut, stækkun Hvalfjarðarganga og fleiri stór verkefni. Skortur á fjármagni hafi lengi verið hindrun í vegi slíkra framkvæmda. Fjölmenni var á markaðsdegi Ganga og brúar í Hörpu. Félaginu er ætlað að tryggja samfellu í undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd stórra samgönguverkefna sem ná yfir mörg kjörtímabil. „Þetta er auðvitað oft stærsta hindrunin en okkur hefur vantað svona, hvað á ég að segja, hvatann til þess að fara af stað og fjármagnið til þess að fara í svona risaframkvæmdir og nú höfum við búið til apparat sem getur hýst þetta og laðað að fjárfesta.“ Viljayfirlýsingin um þróun samgöngumannvirkja er samkvæmt tilkynningu stjórnvalda fyrsta skrefið að því að ríkið feli félaginu formlega ábyrgð á meðal annars uppbyggingu, fjármögnun og rekstri verkefnanna sem þar eru tilgreind. Í tilkynningunni er ekki greint frá frágengnum fjármögnunarsamningum. Framkvæmdir sem ná yfir mörg kjörtímabil Spurð hvort félagið eigi að tryggja samfellu í framkvæmdum, óháð ákvörðunum stjórnvalda hverju sinni, segir Kristrún langtímahugsun vera lykilatriði. „Lykilatriðið er einmitt það að við getum ráðist í stórframkvæmdir sem ná yfir mörg kjörtímabil og gert áætlanir langt fram í tímann.“ Hún vísar til stofnunar Landsvirkjunar sem dæmis um hvernig hægt sé að koma faglegri umgjörð, langtímaáætlanagerð og fjármögnun fyrir innan félags. Þrátt fyrir ágreining í stjórnmálum séu flestir sammála um þörfina fyrir vegaframkvæmdir, jarðgöng og brýr. Í tilkynningunni segir Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra að færsla stórverkefna yfir til félagsins eigi jafnframt að losa um fjármagn innan samgönguáætlunar. Það eigi að nýtast til viðhalds vega og annarra forgangsverkefna sem standi ekki undir sér með gjaldtöku.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Skipulagsmál Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Sjá meira