Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2026 06:57 Charle Spencer, bróðir Díönu prinsessu, segir meðal annars að hún hafi skömmu fyrir brúðkaup hennar og Karls Bretakonungs sagt föður sínum að hún vildi ekki giftast honum. Hann heldur því einnig fram að hún hafi verið svo óánægði í hjónabandinu að hún hafi oftar en einu sinni hugsað um að svipta sig lífi. EPA Charles Spencer, jarl og bróðir Díönu prinsessu, segir að Karl Bretakonungur hafi hljómað „himinlifandi“ þegar hann hringdi í Spencer eftir að systir hans dó í bílslysi. Jarlinn segir að þáverandi prinsinn hafi látið eins og hann hefði unnið í lottói.
Þetta er meðal þess sem Spencer segir í nýrri bók um systur sína. Ummælin þykja hörð í garð Karls og bresku konungsfjölskyldunnar. Á næsta ári verða þrjátíu ár liðin frá því Díana dó í bílslysi í París. Hún hafði þá verið skilin við Karl, eftir fimmtán ára hjónaband, og átti í erfiðu sambandi við konungsfjölskylduna bresku. Díana naut þó áfram gífurlegra vinsælda í Bretlandi. Bókin ber titilinn „Svanasöngur: Díana, systir mín“ en þar segir Spencer meðal annars, samkvæmt blaðamönnum Daily Mail sem hafa lesið bókina áður en hún kemur út, að Díana hafi sagt föður sínum um mánuði fyrir brúðkaup hennar og Karls að hún vildi ekki giftast honum. Hann mun hafa sagt að þá væri of seint að hætta við. Spencer heldur því einnig fram að degi fyrir brúðkaupið hafi Karl sagt Díönnu að hann væri ánægður með að giftast henni en hann elskaði hana ekki. Þá segir Spencer að Díana hafi verið svo óánægð í hjónabandi sínu að hún hafi íhugað að svipta sig lífi. Það hafi gerst oftar en einu sinni en ást hennar á sonum hennar og Karls hafi stöðvað hana. Fyrr í vikunni sendi konungsfjölskyldan út yfirlýsingu þar sem þvertekið var fyrir að Karl hefði sagt við Spencer á sínum tíma að Díana myndi „gleymast fljótt“, skömmu fyrir jarðarför hennar. Eins og fram kemur í frétt Breska ríkisútvarpsins byggir bókin á minningum jarlsins frá því fyrir tæpum þrjátíu árum. Óljóst sé hvernig almenningur í Bretlandi muni taka í bókina og umdeildar ásakanir í henni. Þá er haft eftir talsmanni Harry prins að hann vilji ekki tjá sig um bókina og er þess í stað vísað í yfirlýsingu konungsfjölskyldunnar frá því fyrr í vikunni. BBC ræddi við fyrrverandi upplýsingafulltrúa Elísabetar Bretadrottningar sem segir það þvætting að Karl hafi verið ánægður þegar Díana dó. Hann hafi verið miður sín og ómögulegt sé að hann hafi talað við Spencer eins og bróðir Díönu heldur fram.
Bretland Kóngafólk Karl III Bretakonungur Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Sjá meira